kransagerð, ástandið á heimilinu og jólajólajóla.....
28. nóvember 2007 klukkan 08:46
Í gær fór ég suður í árlega kransagerð okkar skólasystranna síðan í háskóla. Byrjuðum á þessu þegar við vorum á öðru ári í náminu og þetta hefur verið fastur liður í aðdraganda jólanna æ síðan. Alveg nauðsynlegur partur þó stutt hafi verið í prófin, þá var tekinn frá ein dagur til að gera aðventukrans.
Það er ákveðin serímónía í kring um þetta, við hittumst hjá Elínu í Mosó, förum í Garðheima og verslum greni, kerti og bara hitt og þetta. Síðan er komið við í Mosfellsbakarí og við byrgjum okkur upp af næringu. Þegar komið er heim til Elínar fáum við okkur kaffi og brauð og síðan hefjumst við handa við kransagerðina. Skemmtileg stund sem ég gæti ekki sleppt. Við vorum reyndar vængbrotnar núna eins og í fyrra en Ingibjörg (sem býr í Mývatnssveit) komst ekki, s.s. skiljanlegt hún hefur nóg á sinni könnu í námi, kennslu og svo rekur hún kúabú, kjarnakona.
Dagurinn í gær er reyndar líka eftirminnilegur af öðrum sökum, Ofninn inni hjá Stefáni fór að leka eða öllu heldur gaf stykki sig sem liggur að ofninum, píparinn kom og lagfærði það. Þvottavélin bilaði í gær, ég er ekki eins glöð með það en Haukur telur að það sé reimin og er búinn að taka hana og ætlar að athuga með svoleiðis í dag...vona að hún sé til í Borgarnesi.
Þórður Logi kastaði upp í morgun og er bara hálf tuskulegur greyið, við hjónin skiptumst því á að vera heima hjá honum, ég stend vaktina fyrir hádegið síðan tekur Haukur við.
Ég er að komast í jólaskap, aðventukransinn er á borðinu, kippti einnig jólastjörnu með úr Garðheimum og síðan gerði ég eina netta borðskreytingu fyrir sprittkerti, tvær jólaseríur (sem gætu reyndar alveg verið árið um kring) voru settar upp í gærkvöld....þó mér finnist alveg nóg að byrja að setja svoleiðis upp fyrsta í aðventu ..... jæja en só?! Svona til að toppa jólaskapið þá verð ég að komast á ca eina jólatónleika, helst í Reykholtskirkju...sem er besta tónleikahús sem ég veit um