af þyngd, hreyfingu og mataræði
27. nóvember 2007 klukkan 22:30
Ásta spurði hvort ég væri ekki komin í þá þyngd sem ég ætlaði mér... svar:
Jú, ég náði markmiðinu í júní og hef náð að halda mig við það þ.e. að fara ekki yfir 68 kg. Hins vegar hefur mér gengið hálf illa að koma mér í einhverja rútínu í sambandi við hreyfingu nú í haust, hef bara ekki fundið rétta taktinn. Matræðið hefur verið okey en ég hef reyndar slakað fullmikið á núna síðustu vikur(að mínu mati). Ég ætla mér ekki að missa tökin og þess vegna verð ég að halda mig við þann danska í það minnsta á virkum dögum. Ég fór reyndar til Prag um daginn og þar var maður ekki að pæla neitt í neinu, drakk bjórinn eins og ég fengi borgað fyrir það....þið skiljið!
Núna er ég búin að finna taktinn, ætla að mæta í spinning tvo til þrá morgna í viku og ganga tvisvar til þrisvar í viku. Það, plús danski á virkum dögum ætti að halda mér réttu megin við töluna 68. Ég tek það fram að ég hef ekki farið á vigtina nýlega en ég miða eingöngu við eina vigt og hún er staðsett í íþróttahúsinu.

Kveðja drekin stóri