Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

ný vika

26. nóvember 2007 klukkan 08:25
Helgin var fín. Föstudagskvöldið var lítið frábrugðið öðrum föstudagskvöldum, ég lá í sófanum og dormaði yfir sjónvarpinu....ótrúlegt að ég náði þó að vaka yfir Barnaby lögreglumanni. Laugardagurinn fór í námskeið og um kvöldið fórum við á julefroskost á Hraunsnefi, get alveg mælt með þeim stað.
Sunnudagurinn fór að mestu leiti í að vinna á þvottafjallinu sem safnast hafði upp.
Dagurinn í dag byrjaði á ferskum spinningtíma í Borgarnesi og framundan er danskur dagurGlottandi
Matardagurinn......
Mm: Cherios, léttjógúrt, banani.
Hm: Tortilla með kjúlla og grænmeti.
Kvm: Fiskur og grænmeti.
Ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.

Stjörnuspáin á mbl.is segir þetta......
Vatnsberi: Vanalega æsir þú þig ekki út af smámunum, en núna fara vissar upplýsingar í taugarnar á þér, svo þú veltir þér upp úr þeim þar til þú kemst að niðurstöðu.
Þá veit ég það, ég kemst semsagt að niðurstöðu, mér léttir!!

Pælið í því að í dag eru akkúrat fjórar vikur í aðfangadag!!!
Dugleg ertu að halda þig við matseðlinn - varstu ekki komin í þá þyngd sem þú ætlaðir þér.

heheh ekki slæmt að komast að niðurstöðu;) Gangi þér vel
#1
27. nóvember 2007 klukkan 10:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.