Mögnuð byrjun á deginum
22. nóvember 2007 klukkan 09:33
Hæ, hó!
Vaknaði kl 6:15 í morgun, skellti mér í gallann, út að skafa bílinn, sótti Þórunni Harðar og við brunuðum í íþróttahúsið í Borgarnesi. Vorum mættar þar kl 6:45, hjóluðum og gerðum æfingar hjá Erlu spinningleiðbeinanda og það voru ótrúlega margir sem mættu, vorum örugglega tíu. Svo var bara sturta, í föt og brunað heim. Vorum komnar á Hvanneyri kl 8:05 þannig að þetta gekk allt upp, Þórunn byrjar að vinna kl 8:15 og ég er með sveigjanlegan vinnutíma
Morgunmaturinn tilbúinn í töskunni og nestið fyrir hádegið þannig að maður var pottþétt mættur í vinnuna kl 8:15. Já við ætlum að gera þetta í vetur, en auðvitað kemur að því að brjáluð veður geysa og allt það en þá gerum við eitthvað annað, skellum okkur í spinning seinnipartinn eða eitthvað. Ég verð rosalega ánægð ef ég næ að mæta í spinning minnst tvisvar í viku og ganga úti þrisvar í viku. Allt annað er plús.
Stjörnuspáin á Mbl.is segir þetta:
Vatnsberi: Þú ert sveigjanlegur og léttur í rekstri. Þú ert til í að samþykkja stutt og lifandi augnablik í stað skuldbindingu öryggisins. Það er sérlega aðlaðandi.
Hóst, hóst - ef ég væri einhleyp þá myndi ég túlka þetta þannig að ég væri lauslát en af því ég er gift og sérlega stapíl þá túlka ég þetta á þann veg að ég sé ekki með ....hmhmhm kaupæði...(léttur í rekstri)hehehhe
ég neyta að trúa því að þetta sé fyrirboði um það að ég ætli ekki að standa mig í spinninginu í vetur!!!
Aðrar túlkanir óskast!
Vaknaði kl 6:15 í morgun, skellti mér í gallann, út að skafa bílinn, sótti Þórunni Harðar og við brunuðum í íþróttahúsið í Borgarnesi. Vorum mættar þar kl 6:45, hjóluðum og gerðum æfingar hjá Erlu spinningleiðbeinanda og það voru ótrúlega margir sem mættu, vorum örugglega tíu. Svo var bara sturta, í föt og brunað heim. Vorum komnar á Hvanneyri kl 8:05 þannig að þetta gekk allt upp, Þórunn byrjar að vinna kl 8:15 og ég er með sveigjanlegan vinnutíma
Stjörnuspáin á Mbl.is segir þetta:
Vatnsberi: Þú ert sveigjanlegur og léttur í rekstri. Þú ert til í að samþykkja stutt og lifandi augnablik í stað skuldbindingu öryggisins. Það er sérlega aðlaðandi.
Hóst, hóst - ef ég væri einhleyp þá myndi ég túlka þetta þannig að ég væri lauslát en af því ég er gift og sérlega stapíl þá túlka ég þetta á þann veg að ég sé ekki með ....hmhmhm kaupæði...(léttur í rekstri)hehehhe
Aðrar túlkanir óskast!
Frábær túlkun....en nei ég kem ekki að þrífa...en ég er hins vegar alveg til í að kíkja í kaffi og smakka kökurnar þínar ;) tíhí.
#2
22. nóvember 2007 klukkan 15:46
Sátt með þetta Sigga Júlla mín???
En vá hvað þú er dugleg að mæta í spinning. klárlega duglegust.