20. nóvember 2007 klukkan 11:36
Jæja, þá er alvaran tekin við. Nóg að gera í vinnunni og svo er ýmislegt framundan.
Ø Námskeið í vinnunni á föstudag og laugardag, semsagt vinna
Ø Jólahlaðborð á Hraunsnefi á laugardagskvöld - barnapía óskast!!
Ø Stefán Snær keppir á badmintonmóti um helgina
Ø Baka piparkökur á sunnudaginn EF ný eldavél verður komin í húsið!!!
Ø Saumaklúbbsskrall föstudagskvöldið 30. nóv
Ø Jólamatarboð 1. des hjá samstarfsmanni mínum og frú
Ø Próf 7. des
Ø Förum norður 7. des (eftir próf) að gera laufabrauð og heimsækja Steinunni og Dóra
Ø Sumarbústaðaferð með bekknum hans Stefáns 13. des
Ø Fjölskyldusumarbústaðaferð 14.-16. des (gönguferðir og jólaföndur)
Ø Höggva jólatré 22. des
Ø Stefán Snær fer til Danmerkur á Þorláksmessu – verður þar yfir jól og áramót en kemur heim 2. jan.
Ø Auk þess mun ég finna mér tíma til að gera sörur og jólakonfekt
ATH!!!! ég er búin að gera jólahreingerninguna, nú er bara að halda öllu við 
Já, umfram allt ætla ég og mín fjölskylda að njóta aðventunnar í botn. Danski mun verða með í för alla virka daga og svo fer að koma að því að ég hafi mig af stað í REGLULEGA hreyfingu, þarf svo á því að halda – hef ekkert kíkt á vigt en ég finn á fötunum mínum að ég þarf nú ekki að óttast neitt ofboðslega en það er betra að hafa þennan danska með. Er alveg pottþétt á því að hann styður mig 
Sigríđur Júlía
Kv. Margrét