Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Komin frá Prag

19. nóvember 2007 klukkan 11:26
Jæja, þá er ég komin, hress og endurnærð.
Þetta var yndisleg ferð, skoðuðum mjög mikið. Fórum í tvær ferðir með farastjórn, önnur var um gamla bæinn og gyðingahverfið en hin var í kastalahverfið. Hefði ekki vilja sleppa þessum ferðum, Pavel fararstjóri var frábær....mæli með honum.
Borðuðum allskonar mat og smökkuðum allskonar heita tékkneska drykki. Ráfuðum um, smökkuðum pylsur hjá götusölum og heitt jólaglögg. Keypti smá kristal (gat ekki verið þekkt fyrir annað) verslaði aðeins í H&M jólaföt á mig og drengina, Haukur fékk sér skó og þá voru allir vel settir. Fórum í bókabúð og ég keypti tvær bækur um Prag, önnur ljósmyndabók og hin var saga Prag í kiljuformi, fín bók. Svo "duttum" við inn í belgíska súkkulaðibúð og þvílík nautn að koma þar inn...mmmmm....
Allsstaðar var mikið að sjá, fallegar byggingar, iðandi mannlíf, endalausar búðir, fullar af listaverkum, babúskum, kristal og strengjabrúðum.

Í flugvélinni náði ég að klára Svartfugl og svo hafði ég með mér fjórar greinar sem ég las, þannig að skólinn var líka með í ferðinni Glottandi
Í fríhöfninni missti maður sig í sælgætisrekkunum en ég held að við fjölskyldan séum vel birg af jólanammi og jólapúrtvínið því var ekki sleppt.... furðulegt með okkur, það er ekkert ódýrara að kaupa nammið í fríhöfninni en maður er svo vanafastur Hlæjandi
Ef ég á eftir að fara aftur til Prag þá vil ég fara að vori, langar til að sjá borgina í blóma.

En nú getur maður farið að hugsa um næsta stóra viðburð en það eru jólin Brosandi
 
Anna Lísa
Þetta er gaman að heyra, alltaf gott þegar gengur vel og er gaman. Það er nú bara tilheyrandi að kaupa nammi í fríhöfninni þó að það sé farð að kosta það sama sumstaðar, þá skiptir það ekki máli hvar það er keypt og þá er það í lagi.

Heyri fljótlega í þér og fæ nánari fréttir.

Kv Anna Lísa
#1
19. nóvember 2007 klukkan 12:22

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.