Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Allt að gera sig núna.....

14. nóvember 2007 klukkan 09:33
Stóð við það sem ég sagði í gær, var komin í rúm upp úr hálf átta....svaf vel í nótt, úthvíld og fín.
Nú er það vinnan í dag, hádegisrölt í hádeginu, setja niður í tösku í kvöld (ætla að klára Svartfugl í flugvélinni og svo verða þrjár greinar lesnar) og bruna út á flugvöll í nótt....
Prag á morgun - kíkti á veðurspána, hún er eins og ég bjóst við hiti um frostmark og snjókoma í dag, morgun og sunnudag en annars þurrt.

Stjörnuspáin:
Vatnsberi: Það er hægt að leggja hart að sér án þess að fá borgað eða ganga í augun á fólki. Hentu hugmyndum þínum um áreynslu og vertu galopinn fyrir nýjum hugmyndum.
Þessi spá kom of seint - lagði þvílíkt á mig um helgina og síðustu daga við að þrífa og koma öllu réttu megin við núllið - en sumir hafa ekki haft orð á því - búin að læra helling....og svo er öll þessi áreynsla til ekki neins!!!! Eða jú annars, var þetta ekki mest gert fyrir mig en ekki aðra? Ég bíð spennt eftir nýjum hugmyndum - eða þær eru kannski allt í kring??

Blogga ekkert fyrr en í næstu viku Glottandi Gangi ykkur vel Koss Ég hugsa til ykkar á röltinu í Prag Hlæjandi
 
Silla
Góða ferð til Prag....
Passaðu bara myndavélina þína....... hahahhahahha
kv Silla.
#1
14. nóvember 2007 klukkan 14:14
Ég er nú svo aldin að ég man eftir gömlum auglýsingum um AJAX sem fór eins og hvítur stormsveipur um húsið og þreif allt í hvelli. Kannski ég byrji að kalla þig AJAX, nei annars það er ekki gott. Góða ferð og njóttu dvalarinnar, skoðaðu mikið af gömlum húsum og höllum og gerðu allt sem hægt er til að skemmta þér. Dísa
#2
14. nóvember 2007 klukkan 19:46
Vildi bara kvitta fyrir mig, kíki alltaf reglulega inn til þín.

Hafðu það virkilega gott út í Prag, ég hefði nú ekkert á móti því að vera að fara í rómantíska helgarferð með bóndanum til framandi borgar.

kveðja Drekinn stóri
#3
16. nóvember 2007 klukkan 13:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.