Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

neikvætt-jákvætt

09. nóvember 2007 klukkan 09:31
Það var saumó í gær, þvílíkar kræsingar á borðum hjá henni Sirrý mmmmm, takk fyrir mig Brosandi
Eins og góðum saumaklúbbi sæmir þá sitja allir/flestir með einhverja handavinnu, borða og drekka þess á milli og ræða málin.
Í þessum saumaklúbbi eru heimsmálin ekki rædd - ekki er leyst úr öllum heimsins vanda eins og sagt er. Hins vegar er nærumhverfið oftar en ekki mál málanna og í gær voru allir frekar neikvæðir út í götulýsingu, gangstéttir, hraðakstur og endurskinsmerkjaleysi.....Fýldur....ég tók alveg þátt í þessu neikvæða tali, gagnrýndi af mikilli hörku - en svo hlóum við Tedda á leiðinni heim, þegar við þreyfuðum okkur heim í myrkrinu ÁN endurskynsmerkja!! Hlæjandi hehehehhe!!
Annars er ekkert vit í að vera svona neikvæður og mér datt saumóinn í hug þegar ég las stjörnuspá dagsins í dag:
Vatnsberi: Alveg eins og sólargeisli sem kíkir í gegnum stækkunargler getur kveikt eld, þá tekur hið góða yfir og margfaldast þegar þú ert jákvæður.
OK það er ekkert að marka stjörnuspár því þær eru bull og síðan er innbyggð skekkja í þeim vegna flögrandi gervitungla og hárra bygginga (eins og gamli sveppur hefur bent á) EN þessari stjörnuspá eða réttara sagt visku tek ég mark á! Enda er munur á spá og visku, eða er það ekki....??
Góður punktur, maður þarf stöðugt að vera minna sig á að vera jákvæður, það er svo auðvelt að taka undir neikvæðistal.

Kveðja Drekinn stóri
#1
09. nóvember 2007 klukkan 12:50
 
Magga
Sammála...þetta var frekar neikvæður klúbbur...spurning um að hafa það sem skilyrði í klúbbnum að þótt það megi auðvitað tala um eitthvað sem betur megi fara þá verði hver og einn saumaklúbbsmeðlimur að koma með einhverja jákvæða athugasemd og tillögu að jákvæðri umræðu. :)

Kv. Magga í jólagírnum...
#2
10. nóvember 2007 klukkan 10:50
 
Þórunn H.
Einhvern veginn er það orðin dálítil lenska í okkar blessaða saumaklúbbi að viðra sömu málin endalaust...... það er lítið annað rætt en það sem að er hér í okkar blessaða þorpi og snýr þá fyrst og fremst að skipulagsmálum, hættum sem börnum stafar af og skólamálum.
Einu sinni var ég í saumaklúbbi þar sem bannað var að ræða þrjú málefni; eiginmennina, börn og veikindi - einmitt af sömu ástæðu. Þetta gjörbreytti saumaklúbbnum okkar og við fórum að geta talað um ýmislegt sem aldrei hefði borið á góma ella.
Er þetta ekki bara málið? - er mikið búin að velta þessu fyrir mér....
#3
10. nóvember 2007 klukkan 17:10

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.