Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Börnin stćkka...tíminn líđur....

08. nóvember 2007 klukkan 08:42
Í gær þegar stubburinn var kominn í rúmið var ég óvenju hress, lá ekki eins og skata upp í sófa og dormaði, nei ég fór í það verðuga verkefni að ryksuga íbúðina. Bað Stefán að taka til í sínu herbergi svo ég gæti rennt yfir það í leiðinni. Allt í lagi með það nema hvað að drengurinn var eitthvað svo lengi með lokað að sér og greinilega alveg brjálað að gera hjá honum. Það sem blasti við mér þegar ég svo fór inn í herbergið voru kassar. Dagurinn í gær var dagurinn þegar tindátarnir, steinar og skeljar, legóið og playmóið fékk að fara í kassa, þeir merktir og þeim komið fyrir í hillu úti í bílskúr. Strákurinn minn sem er 11 ára en verður 12 eftir tvo mánuði er hættur að leika sér að þessu dóti!!! Takk fyrir! Núna eru það tölvur og sjónvarpð sem eiga hug hans allan.... eða svona næstum því. Hann er farinn að lesa bækur sér til skemmtunar og það er ég mjög ánægð með. Flottustu steinarnir fóru ekki í kassa út í bílskúr, ekki heldur alvöru tindátarnir frá Rússlandi og William Wallace-dótið, GeoMac-ið er enn á sínum stað enda er það alveg eins fullorðins...
Hehe kannski maður ætti að fara gera slíkt hið sama, og setja dótið ofan í kassa og hætta að leika sér með það, hinns vegar er mjög gaman að grípa smá í legó af og til!! ;) Annars, kveðja frá Hólarcity!! ;)
#1
08. nóvember 2007 klukkan 10:00
 
Kristín
Ekkert smá góður árangur hjá þér...hlakka til þegar ég kemst í mína kjörþyngd:)
#2
09. nóvember 2007 klukkan 02:04

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.