Það er komið vel á annað ár síðan eldhúsið mitt var endurgert og nú á ég blástursofn í vinnuhæð og keramikhellu-eldavél. Rafha eldavélin mín var flutt í brotajárn um leið. En ég var svo sannarlega fegin að hafa nýtt eldhús til að vinna í þegar við byrjuðum í danska.
Síðan er innbyggð skekkja í stjörnuspám, meðaltöl af rísandi húsum og tunglum einhvers staðar á þvælingi.
Kveðjur, gamli sveppurinn
ný eldavél eđa ekki....
07. nóvember 2007 klukkan 10:00
Verkefni dagsins (fyrir utan þetta venjulega) er að fara að kaupa nýja eldavél.... sú sem fyrir er er algerlega óþolandi, hellurnar s.s. ok en ofninn - algjörlega ömó!! Get ekki bakað neitt svo ég sé örugg með að HANN (ofninn) klúðri því ekki
Sé fyrir mér eldavél með keramikhelluborði og blástursofni 
Hins vegar þegar ég kíkti á stjörnuspána mína þá var ég ekki viss.......
Vatnsberi: Fylgdu reglum og vertu var um þig. Huga verður að minnstu atriðum þegar kemur að viðskiptum og eyðslu. Smáa letrið leynir á sér.
Þið skiljið hvað ég meina....spurning um að skoða bara eldavélar í dag en kaupa á morgun - eða hugsa bara: æidjöermérskítsamaumstjörnuspárþærerualgjörtbull - hugs
AHHHHHHH nú man ég það er hljóðfæradagur á leikskólanum í dag - gat verið að ég gleymdi því?? Jú eiginlega en til afsökunar þá lítur þetta svar miklu betur út: Nei, ég hef svo mikla samúð með leikskólakonunum....hugsið ykkur allir krakkar með munnhörpur, flautur og hristur..... úff ég fæ nú bara höfuðverk við tilhugsunina

Er annars í glimrandi góðum gír eftir frábæran hljóðfæradag.......og á leið á kóræfingu í kvöld!