Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

helgin í stikkorđastíl

04. nóvember 2007 klukkan 22:11
Ég var að vinna í gær vegna námskeiðs, það gekk vel.
Fann að ég var að fyllast af kvefi en ég er sauðþrá og fór samt í afmæli í gærkvöld - gjörsamlega raddlaus - missti röddina algjörlega svona klukkutíma áður en ég lagði af stað í afmælið.... en þetta var geggjað afmæli Hlæjandi
Fór í annað afmæli í dag - þar voru prófaðar 5 nýjar uppskriftir úr síðustu Gestgjafablöðum mmmmmmm.
Ég er eiginlega svolítið slöpp, finn að mér er að slá niður..... kannski fer ég í vinnuna á morgun og kannski ekki.... erfitt þegar maður er svona "hálf" veikur. Ef ég hefði legið heima í rúmi alla helgina þá væri ég kannski hressari Skömmustulegur mér er nær!

MUNA: Á morgun er rauður dagur  á leikskólanum!!!!

Að lokum.
Ljóð vikunar, valið tilviljanakennt úr Ljóðasvig II eftir Stefán J Fjólan.

Rjátl
Ég dunda mér við að reyna að gleyma þér
en heimatökin eru fráleitt hæg og þessvegna
óska ég þér góðs gengis hvernig sem viðrar.

Ađalheiđur Sigurđardóttirhjartađ réđi ţví varstu ekki heima í rúminu alla helgina, Ţađ er sko ekkert skrítiđ ađ ţú gleymir einu og öđru á leikskólanum ţađ eru alltaf einhverjir dagar, rauđur, nátttfata, dóta, á međan ađ ţú gleymir ekki "verum heima deginum" ţá sleppur ţađ, en er hún Unnur mín ekki ađ vinna ţar núna??
Kv Heiđa
#1
05. nóvember 2007 klukkan 09:26
mmm .. gestgajafablöðin geta verið ansi girnileg, svo ekki sé nú minnst á það nýjasta =)
Betra að vera heima einn dag og hvíla sig ef maður er "hálf lasin" heldur en að verða "mjög lasin" :) batnistraumar til þín.
#2
05. nóvember 2007 klukkan 10:44

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.