markmið dagsins
02. nóvember 2007 klukkan 10:08
Markmiðið með þessari færslu er að hafa hana lengri en í gær 
Stjörnuspáin á mbl segir þetta:
Vatnsberi: Þú ert í skyggnu vatnsmerki og veist í hjarta þínu að kjarni þekkingarinnar býr í tilfinningunum ekki hugsuninni. Innsæi þitt leiðir þig nákvæmlega þangað sem þú átt að vera.
- sem þýðir að ég á ekki að láta hausinn ráða för....heldur hjartað....jebbs þá veit ég það.
Annars er ég bara hálf slöpp í dag, finn að kvef er að hreiðra um sig í hausnum á mér - frekar slæm tímasetning þar sem ég bara verð að vinna fram á kvöld í dag og allan morgundaginn. Þarf að vera til taks á námskeiði fyrir skógarbændur en sem betur fer þarf ég ekki að fara langt að heiman, get sofið fyrir framan sjónvarpið mitt í kvöld og fært mig svo inn í rúmið mitt í nótt
Ég var að fatta að gleymskan er farin að há mér mjög mikið, gleymdi miðvikudagsljóðinu.... ohhh þessi skóli! (skrifa alla gleymsku á hann, sko)
Annars fór ég í saumó í gærkveldi, fínn klúbbur verð ég nú að segja. Þar áður hafði ég farið í klippingu og stípur - allt annað að sjá mig - NB að mínu mati....held það hafi bara enginn tekið eftir breytingunni
greinilega fleiri sjálfhverfir en ég ....tek mjög sjaldan eftir því þegar fólk er nýkomið úr klippingu 
Er að reyna að líta veturinn björtum augum, gaf sjálfri mér vetrargjöf í gær, þrammaði í apótekið og keypti spírúlínu, hef verið allt of þreytt og duglaus undanfarið.
Hádegisröltið hefst að nýju í dag - stefnt er að hádegisrölti mánudaga, miðvikudaga og föstudaga og genginn er einn hringur hér á Hvanneyri ca 1,5 km.
Takk fyrir kvitt stúlkur og verum bjartsýnar!

Já ég hef trú á þessu, ekki skemmir að þeir segja járnið vera auðmeltanlegt, það er einmitt hönnunargalli á mér að ég verð helst að taka járn en maginn fer í flækju ef ég geri það....
#2
02. nóvember 2007 klukkan 14:40
Heiða
Ég kannast við þennan vetrarleik... ég segi við sjálfa mig allan veturinn að hann hafi ekki áhrif á mig.. eða þá að mér takist að taka ekki mark á honum... En svo kemur vorið og þá finn ég hvað ég lifna við! Ég er bara farin að hlakka til að fá jólin og ljósin og birtuna inn í skammdegið :) Svo er það náttúrulega staðreynd að þegar maður hreyfir sig verður maður einhvern veginn alltaf svo bjartsýnn og glaður :)
#3
04. nóvember 2007 klukkan 20:59
Magga
Já, mér fannst þú einmitt líta hrikalega vel út í saumó!! Ofboðslega flott klippingin þín, fer þér vel... ég er bara svo treg að ég hreinlega fattaði ekki að það gæti verið að þú hefðir farið í klippingu... :S Þú lítur líka alltaf svo vel út! :)
Kv. Magga, sem er að safna náttúrulegum, gráum strípum...

#4
04. nóvember 2007 klukkan 21:19
Upplýsingar úr bókinni Biology of plants voru í boði gamla svepps.