Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Sukkhelgi ađ baki

22. október 2007 klukkan 10:06
Það var auðvitað þannig að fyrst mamma og pabbi voru á svæðinu þá var sukkað alveg hrikalega!!! Rjómaberjabomba á föstudagskvöldið þegar þau komu, bakaríisbakkelsi í hádeginu á laugardag, grillsukk um kvöldið og snarlað í bakaríinu í hádeginu á sunnudag. Semsagt brauð, brauð og aftur brauð, ásamt heilum helling af sætu sukki Öskrandi
Þetta var hins vega mjög gaman en núna horfi ég fram á veginn, gerði fullan pott af grænmetissúpu í gærkveldi og ætla að vera 100% dönsk!!! Þarf virkilega á því að halda, ætlaði að skreppa í spinning í morgun en hafði mig ekki af stað, var vakandi svo lengi við að læra.
Annað sem við gerðum um helgina, við bjuggum til saltkeramik og Þórður lék sér með það, stimpluðum lófa og fótafar, svakalega gaman. Síðan bjuggum við til leikdeig og það var endalaust hægt að vesenast með það.
Stefán keppti á móti í gær og gekk glimrandi vel, ánægður með þetta og hlakkar strax til næsta móts.
Ég er að undirbúa mig fyrir staðlotuna sem verður á fimmtudag og föstudag í Kennó, svo er það vinnan og heimilið....já alltaf nóg að gera á okkar heimili Brosandi
oohh ... erfitt að lenda í svona .. gerist oft heima hjá tengdó. Tekur á því í ræktinni í staðinn ... sýnir þessu sætabrauði hver ræður hér ;)
#1
22. október 2007 klukkan 12:13
Hehe þegar ég las fyrirsögnina hélt ég að það hefði verið svona klikkað fillery á ykkur um helgina, en jæja!!! ;)
#2
22. október 2007 klukkan 16:43
 
Magga
Þessi helgi hljómar vel...! :) Efast ekki um að þú komist í gírinn aftur, þú ert svo stabíl! :)

Kv. Magga
#3
22. október 2007 klukkan 22:31

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.