Já, römbuðum hér inn. Við Ellý sátum á móti hvor annari, með sitthvora fartölvuna og kvittuðum hjá þér! Algjörir tölvunördar!
Hlakka til að lesa bloggið þitt.
Kv.Lilja
Ekkert blogg í fjóra daga!!!!!
16. október 2007 klukkan 11:23
Jæja, núna fær maður móral, búin að skammast í ykkur kæru lesendur en stend mig svo engan vegin í blogginu!
Það gengur allt voða vel hjá mér og mínum. Loksins farin að vera heima hjá mér og svei mér þá ef ég næ ekki bara tíu dögum heima við eða í 100 km radíus við heimilið - húrra fyrir mér
Það þarf þá enginn að hneykslast á flakkinu á mér á meðan.
Ætlaði að byrja í hádegispúlinu í dag en verð að láta það bíða því heima er lítill stubbur sem er lasinn, Haukur verður heima hjá honum í dag og ég á morgun.
Púlið fer ekkert frá manni fresta því bara aðeins að byrja.
Ég þyngist ekki og léttist ekki - þetta er bara allt eins og það á að vera. Vinna, skólastúss og heimilisstúss framundan og já saumóinn verður loksins hjá mér núna í vikunni.
Takk fyrir öll "kvittin" frábært að sjá að frænkurnar hafi rambað á síðuna mína, þið eruð æði!
Já, svo má ég ekki gleyma að segja ykkur frá því að ég fékk senda, tæplega þrjúhundruð síðna ljóðabók eftir vin föðurbróður míns sem býr á Akureyri. Er að spá í að leyfa ykkur að fá smá nasaþef af þessari bók með því að dengja hér inn ljóðum sem verða valin handahófskennt úr bókinni - en það kemur á morgun- já er að hugsa um að hafa miðvikudaga ljóðadaga......

Lilja Sólveig Óskarsdóttir
#2
16. október 2007 klukkan 23:51
#3
17. október 2007 klukkan 09:01

En ég ligg á bæn með hitt sem þú varst að spurja um í dag og ég gerði svooo mikið hux en ekkert fatt.... haha
Hafðu það gott Sigga mín, bið að heilsa familý.