Hverjir lesa ţetta??
12. október 2007 klukkan 11:49
Ég hef verið að velta því fyrir mér að hætta að blogga eða að læsa síðunni - hingað hafa komið nokkur hundruð manns það sem af er október en innan við tíu hafa kvittað eða komið með skoðanir.......hverjir eru eiginlega að lesa þetta hversdagslega blogg mitt?? En svo hugsa ég aftur á móti að bloggið er fyrir mig og engan annan, dagbókarform sem hentar mér - mundi aldrei nenna að skrifa dagbók í stílabók eða í word. Þætti samt gaman að fá að vita hverjir álpist hingað - forvitnin er að drepa mig 
Helgin: Förinni er heitið að Laugum í Sælingsdal, í dag. Námskeiðið verður brotið upp á morgun með gönguferð og staðkunnugur mun fræða okkur - þarna er sagan við hvert fótmál. Laugardagskvöldið og sunnudagurinn verður fjölskyldutími
Góða helgi!

Rakel
Íslenskir svíar kíkja reglulega á þig Sigga mín en kvitta ekki alltaf. En nú þarf ég að fara hafa almennilega samband og fá fréttir af brasinu þínu og deila með þér mínu brasi. Heyrumst!!
#2
12. október 2007 klukkan 16:12
Ólöf Bjarnadóttir
Hæ gaman að fá að lesa bloggið og fá að skyggnast pínu inn í líf þitt ;-) Gangi þér vel í lærdómnum.... góða helgi!
#3
12. október 2007 klukkan 16:51
Magga
Ég kíki líka mjög svo reglulega (a.m.k. einu sinni á dag) en kvitta sjaldnast fyrir...dónaskapur á hæsta stigi... :) Skal bæta mig í kvittununum, tala nú ekki um ef ég má kíkja áfram ef þú læsir síðunni...alltaf gaman að lesa bloggið þitt og heyra hvað þú ert að brasa!
Kv. Magga
Kv. Magga
#4
12. október 2007 klukkan 17:47
Silla
Kíki oft en kvitta sjaldan... :s sorrý Sigga mín..:(
En þú ert ofurdugleg, ekki hætta að blogga :) OK???
kv Silla.
En þú ert ofurdugleg, ekki hætta að blogga :) OK???
kv Silla.
#5
12. október 2007 klukkan 18:34
hvitta alltaf þegar ég kíki... ef eru nýjar færslur:).....ég var einmitt að spá í það hverjir koma ásíðunna mína oft 50 manns á dag en fáir hvitta:(.....kv.Hugrún
#6
13. október 2007 klukkan 15:48
Anna Lísa
Ég líka
#7
14. október 2007 klukkan 20:58
Ţórunn Edda
Ég kíki nokkuð reglulega :)
#8
14. október 2007 klukkan 22:04
Ţórunn H
Auðvitað er ég hér reglulega - en er löt að kvitta - en er það ekki bara allt í lagi??
#9
14. október 2007 klukkan 22:57
hæ Sigga
ég kvitta sjaldan en kíki oft, ég er svooooo latur kvittari hmmmm
kv Allamalla
ég kvitta sjaldan en kíki oft, ég er svooooo latur kvittari hmmmm
kv Allamalla
#10
15. október 2007 klukkan 08:13
Kíki hér inn alveg mjög reglulega. Svo gaman að lesa blogg sem er uppfært oft á viku.
#11
15. október 2007 klukkan 08:49
Hjördís
Halló Sigga
ég kíki mjög reglulega inn á bloggið þitt og það veitir mér styrk að sjá að það eru fleiri að takast á við sömu vandamál og maður sjálfur ! allavega þekki ég þig ekki neitt en það er gott að lesa bloggið þitt og veitir mér styrk ekki hætta að blogga ég skal kvitta líka oftar kv Hjördís

#12
15. október 2007 klukkan 15:33
ég drattast stöku sinnum hingað - endilega vertu dugleg að skrifa:)
#13
15. október 2007 klukkan 22:16
farið að styttast ískyggilega í næstu staðlotu...
góða helgi dúllan mín :)