Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Fimmtudagur

11. október 2007 klukkan 14:49
Jæja, ég anda léttar er komin heim, búin að læra helling, vinna helling og búin með kaflann minn í hópaverkefninu - geri nú samt ráð fyrir að bæta aðeins við hann EN ég hef alveg viku til þess ef mér finnst ástæða til. Annars er ég bara nokkuð sátt við kaflann.

Á morgun fer ég vestur í Dali (Lauga í Sælingsdal) því við hér í vinnunni minni stöndum fyrir námskeiði fyrir skógarbændur - það mun standa fram til seinniparts laugardags. Annað kvöld ætla ég að nýta tímann á Laugum og klára smá undirbúning fyrir annað verkefni í skólanum.... já það borgar sig að nýta tímann vel.

Laugardagskvöldið og sunnudagurinn fer líklega í samverustund með fjölskyldunni....ohhh hvað ég hlakka til.

Ég verð nú að segja ykkur eitt alveg ótrúlega fyndið, haldið þið að litli stubburinn minn hann Þórður Logi sé ekki að fara að byrja í íþróttaskóla!!!!!! Jamm tveggja ára og er skráður á námskeið næstu sex sunnudagsmorgna Glottandi 

Mataræðið er í góðu lagi - hef þó ekki farið á vigtina nýlega en ég finn það að fötin eru ekki að þrengjast, það er góðs viti Óákveðinn.........smávægilegur hlutur sem skiptir ekki máli því hugur minn er hjá frænku mannsins míns og hennar fjölskyldu þessa dagana. Ef ég gæti einhverntíman reiðst við Guð þá er það í þessu tilfelli, þegar ungt fólk glímir við sjúkdóma og það er ekki búið að koma upp sínum börnum. Ég er þakklát fyrir allt sem ég hef, heilsan er fyrir öllu en ef ég mætti biðja um eitt, aðeins eitt, þá er það það að ef það á fyrir mér að liggja að banvænn sjúkdómur herji á mig - þá vil ég vera búin að koma börnunum mínum til manns.

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.