Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Uppskrift og Jesúbrandari

02. október 2007 klukkan 11:39
FAK fundurinn heppnaðist vel, ég bauð upp á þetta kjúklingasalat, uppskriftina fann ég einhversstaðar en breytti aðeins þannig að ég held það sé í góðu lagi að birta hana hér:

2 kjúklingabringur, matreiddar og niðurbrytjaðar (líka bara sniðugt að nota afganga)
1 bréf beikon, steikt
1/2 haus icebergsalat,  rifið niður
1 paprika söxuð
1/2 gúrka söxuð
1-2 bollar soðin hrísgrjón
1/2 krukka fetaostur (í góðu lagi þó eitthvað af olíunni fari með)
1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar, saxaðir

Kjúllinn, beikonið og grænmetið er saxað eða tætt niður í skál. Hrísgrjónin, fetaosturinn og sólþurrkuðu tómatarnir er blandað saman og sett svo með hinu í skálina.
Svakalega gott!

Brosandi
Fáið þið ekki stundum allskonar brandara og bull í tölvupósti? Fékk eitt alveg ótrúlega fyndið sem mig langar til að leyfa ykkur að  njóta....veit ekki hvað prestinum finnst sem kíkir hingað stundum.....en þetta kemur mér til að hlæja Hlæjandi 
Talandi um presta þá hneykslaði einn mig svo um daginn að ég hef bara eiginlega ekki geta tjáð mig um það hér.....svo frétti ég það  að atvikið hafði fréttst austur á land, þannig að ég tjái mig kannski um þetta mál síðar sem er þó ótrúlega saklaust mál en gerði mig þó hálf fúla út í þennan prest...eða nei ég held ég tjái mig kannski ekkert um þetta hér Óákveðinn EN hér er brandarinn:

Hver var hann?

Þrjár sannanir fyrir því að Jesú var mexíkani.
- Hann hét Jesú
- Hann talaði tvö tungumál
- Hann hafði aldrei frið fyrir yfirvöldum

Sömuleiðis eru líkur á því að Jesú hafi verið svertingi.
- Hann kallaði alla "bræður sína"
- Hann var hrifinn af gospel
- Hann fékk aldrei sanngjarna málsmeðferð hjá yfirvöldum

En það gæti líka vel verið að hann hafi verið Gyðingur.
- Hann fetaði í fótspor föður síns
- Hann bjó heima þangað til að hann var 33 ára
- Hann notaði ólífuoliu

Þrjár sannanir sem sýna sterklega að Jesú hefði vel getað verið
ítalskur.
- Hann baðaði út höndunum þegar hann talaði
- Hann drakk vín með hverri máltíð
- Hann var viss um að mamma sín væri hrein mey og mamma hans var viss
um það að hann væri Guð.

Þrír möguleikar sem sýna að hann hefði getað verið frá Kaliforníu.
- Hann lét aldrei klippa sig
- Hann gekk berfættur
- Hann lagði grunn að nýrri trú

En það er þó mjög líklegt að hann hafi verið Íri.
- Hann giftist aldrei
- Hann elskaði að vera úti í náttúrunni
- Hann var sífellt að segja sögur

EN....það líklegasta er að Jesú hafi verið KONA.
- Hann var neyddur til að fæða fjölda manns án fyrirvara þótt ekki
væri nokkur matur til !!!!!!
- Hann reyndi að láta rödd sína heyrast meðal fjölda karla sem ekki
föttuðu baun.
- Þrátt fyrir að hann væri dáinn, varð hann að rísa upp aftur því það
var meira sem hann átti eftir að gera !!!!!!!!!!

Þessi brandari er náttúrulega bara brilliant :)
Takk fyrir peppið skvísa og namm hvað þetta kjúklingasalat hljómar vel!!!

Gangi þér vel dúlla....................
#1
02. október 2007 klukkan 14:16
Aðalheiður SigurðardóttirAudda var hann kona marh.
#2
02. október 2007 klukkan 14:29
 
Silla
HAHAHHA þetta er snilld.. jesús var kona, það er ekki spurning!!
En takk fyrir peppið á minni síðu, er að reyna að koma rétta hugarfarinu í þetta, þetta kemur allt með kalda vatninu!! híhíhí
Já og takk fyrir lánið á karlinum í gærkvöldi.. alveg brilliant!!!
Sjáumst næsta þriðjudag!
kveðja í bæinn Silla.
#3
03. október 2007 klukkan 11:50

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.