Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

FimmtudagsROKblogg

27. september 2007 klukkan 11:35
Úti er ROK, já rok með stórum stöfum, manni líður eins og hitastigið sé mjög lágt en samt sýnir veðurathugunarstöðin hér á Hvanneyri hita uppá 14°C sem er nú allmikið. Ég sit inni við tölvuna og reyni að koma einhverju vitrænu á blað en ákvað samt að henda inn einu bloggi svona upp á grínið. Mataræðið hefur verið svona allt í lagi síðustu daga, þó geta heimsóknir á bæi tekið verulega á þegar bændum hér upp um allar sveitir þykir ómögulegt annað en að bjóða uppá eitthvað með kaffibollanum. Þetta fer að hljóma eins og ég sé alltaf í kaffi á bæjum...en það fylgir víst starfinu að setjast inn og fara yfir málin.

Svona til að upplýsa ykkur um mataræði dagsins í dag:
Morgunmatur: 75 gr. skyr, brauð með smyrju og sultu, 1 banani.
Hádegi: Grænmeti (hrátt) og túnfiskur....hálfgert salat.
Kvöldmatur: Ofnbakað grænmeti en síðan er saumó og ég geri ráð fyrir að borða eitthvað þar og sleppi því kjöti í kvöld.
Rest af ávöxtum, fita og mjólk í saumó í kvöld + slatti í extra.

Komst á ágætt skrið með eitt verkefni seinnipartinn í gær - sem tengist náminu sem ég er í Hlæjandi Er bara bjartsýn á þetta nám - ofsalega gaman og reyndar eitthvað sem ég hef lítið pælt í. Ég sé líka að margir kennararnir mínir í Landbúnaðarháskólanum hefðu haft gott af því að skella sér í þetta nám....eru ekki alveg að standa sig í að byggja hlutina rétt upp!!! Jebbs og þetta meina ég sko af heilum hug....allir í Kennó!

Ég bý svo vel eða réttara sagt er mjög heppin að hafa sveigjanlegan vinnutíma og því hef ég ákveðið að stunda líkamsrækt 2-3 svar í viku í hádeginu. Það eru hádegistímar í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi sem byrja klukkan 12:10 standa þeir yfir í ca 40 mín. sambland af spinning og styrktaræfingum. Ef ég geri þetta er ég taka ca 1 1/2 tíma í hádegismat en ég get unnið það upp með því að vinna lengur á daginn - sem er ekkert mál. Ég tel einnig að ég muni afkasta miklu meiru ef ég geri þetta en ella.
Yfirmaður minn, hann Sigvaldi er mjög hlynntur þessu en hann gerir sér mjög vel grein fyrir mikilvægi þess að vera í góðu líkamlegu formi. Fyrir utan það hvað andlega hliðin verður miklu betri ef maður hreyfir sig Glottandi 
Svona mun þetta verða í vetur: Fyrir utan það að mæta í hádegispúl 2-3 svar í viku þá ætla ég að taka langa göngutúra minnst einu sinni í viku, þá er ég að stunda reglulega hreyfingu (fyrir utan vinnuna) svona 3-4 sinnum í viku sem er fínt, eitthvað sem ég ræð við, hef tíma fyrir og kem ekki til með að gefast upp á.

Fyrsti tíminn í hádegispúli verður í dag. Ætla að smella mér á vigtina í leiðinni. Það verða komnar inn tölur á þyngdarsðuna einhverntíman seinnipartinn.
Ef ég er komin yfir 68 þá ætla ég að standa mig betur í að passa upp á mataræðið en ef ekki þá er ég í góðum málum Brosandi

Smá uppfærsla, klukkan er 13:24 búin að skella mér á vigtina góðu 68,3 kg er staðreynd- nú skal haldið rétt á spöðunum...... Svalur Ég skal halda mig við mín fyrri markmið ekki yfir 68 en 67 er æskilegt!!!!! Semsagt 300 grömm burt og það strax, fer aftur á vigtina í næstu viku Glottandi
Ađalheiđur Sigurđardóttirţađ er allt í rífandi gangi hjá ţér Sigga Júlla mín
#1
29. september 2007 klukkan 10:08

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.