Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Yndisleg haustblíđa

25. september 2007 klukkan 17:36
Einn af megin kostum starfs míns, það er mikil útivera. Ég fer og kortlegg væntanlegar skógarjarðir, heimsæki skógarbændur og leiðbeini - mjög gaman. Þess fyrir utan vinn ég heilmikið inni á skrifstofu þar sem ég skrái upplýsingar um þessar jarðir og held utan um þetta allt saman.
Dagar eins og dagurinn í dag eru frábærir að því leyti að þeir minna mann á hvað þetta er frábært vinna. Veðrið var yndislegt, ég byrjaði daginn á því að fara út á skrifstofu og kíkja á tölvupóstinn, fékk mér almennilegt kaffi sem við búum stundum til og svo brunaði ég á jeppanum (vinnan á hann...glætan ekki ég) upp í Reykholtsdal þar sem ég heimsótti eina gamla konu sem er skógarbóndi. Það var frábært, gekk um og skoðaði plönturnar sem hún gróðursetti í sumar og í leiðinni kíkti ég á eldri gróðursetningar, settist svo inn hjá kerlu og við kíktum aðeins á pappíra og fylltum út skýrslu. Hjá þessari gömlu konu er yndislegt að vera, það er eins og tíminn standi í stað hjá henni, ýmislegt hjá henni sem minnir mann á hluti sem voru til hjá afa og ömmu hérna í denn, bollarnir, dúkurinn á borðstofuborðinu, útvarpið, stofuklukkan, klukkustrengirnir og meira að segja blómin eru gamaldags (alls ekki í neikvæðum skilningi). Hún ræktar allt sitt kál og kartöflur sjálf og auðvitað bauð hún mér í kjötsúpu, ég varð eins og eitt spurningarmerki þegar hún bauð mér kjötsúpuna, klukkan rétt um ellefu fyrir hádegi.... "það er miklu betra að bjóða þér upp á kjötsúpu en að ég bjóði þér upp á kaffi, fer miklu betur í magann" ...yndislegt! Síðan fór ég á aðra tvo bæi og bara frábært alveg hreint, gaman að ganga um með fóki og sjá hverju það hefur hrundið í framkvæmd í sumar - allir svo stoltir. Í þessari blíðu sá ég fjóra jökla; Snæfellsjökul, Eiríksjökul, Langjökul og Þórisjökul. Svo sá ég fullt af fjöllum en ég veitti einu sérstaka athygli því ég sé það ekki oft héðan en það er Skjaldbreið, það var þegar ég keyrði upp Flókadalinn- aldrei tekið eftir því áður.
Já, svona var dagurinn hjá mérBrosandi
 
IB
svo gott að eiga svona góða daga :)
#1
25. september 2007 klukkan 19:18
Enn frábær dagur:) Ég var alveg komin í anda inn í stofu til ömmu, gamla gufan, blúndudúkar og kaffiilmur :)
#2
26. september 2007 klukkan 16:21
Sæl Sigríður Júlía,
Gekk fram á þig í danska bransanum. Er í þessu líka og karlinn einnig.
Bið að heilsa Sigvalda.
Kveðjur frá Akureyri
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
#3
26. september 2007 klukkan 19:54
 
Rakel
Mig langar heim þegar ég les þessa lýsingu, þetta er náttúrulega frábært starf :-)
Bestu kveðjur
Rakel
#4
02. október 2007 klukkan 16:32

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.