Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hversdagslegt helgarblogg

23. september 2007 klukkan 10:21

Nú er sunnudagsmorgunn og ég er komin út í vinnu til að læra - og þá er upplagt að henda inn einni bloggfærslu Brosandi
Eftir að vinnu lauk á föstudag lærði ég fram að kvöldmat, algjör snilld að hafa aðgang að fyrirlestrunum á netinu og geta hlustað á þá hvar og hvenær sem er. Kvöldinu eyddi ég svo upp í sófa pökkuð í lopasokka, lopapeysu og undir ullarteppi, dottaði ansi mikið og sá glefsur úr bíómyndum kvöldsins.... hm ég get nú eiginlega ekkert sagt ykkur um  þær, því ég svaf mestan hluta kvöldsins.
Laugardagurinn (gærdagurinn) fór í það að koma heimilinu á réttan kjöl en eftir margar tilraunir til að byrja (eftir nokkra kaffibolla) gat ég loksins byrjað, ótrúlegt hverju ég kom í verk og nú hefst smá montupptalning bara fyrir mig (minni á að það er enginn að neyða ykkur að lesa þetta); þreif gluggana í stofunni, þurrkaði af, þreif baðherbergið, ryksugaði og skúraði, þvoði þvott OG braut saman og síðan það sem ég er stoltust af, ég tók til í þvottahúsinu!!! Á meðan á þessu stóð var Stefán að leika sér, Þórður var mestan part sofandi og síðan bara að dunda sér og Haukur var að vinna. Í gærkveldi buðum við svo Sirrý, Júlla, Berghildi og Ásgerði í mat - buðum upp á gúllassúpu og ís með heimalagaðri íssósu í eftirrétt. Settist svo með saumadótið mitt við sjónvarpið og horfði á eina mynd - án þess að sofna Glottandi 
Dagurinn í dag verður helgaður lærdómi.

:)eftir að hafa eytt helginni í ekki neitt..... nema að sitja og láta mér leiðast.... þá get ég nú ekki annað en klappað og tekið ofan fyrir þér (gleraugun,því ég á engan hatt;) )...duglegust!.... eigðu góða vinuviku:)...knús:)
#1
23. september 2007 klukkan 23:21
Aðalheiður SigurðardóttirGott með þig!! Ekkert smá dugleg í tiltektinni, og svoooo er líka svo gott að setjast niður þegar allt er orðið hreint og fínt. knús á þig
KV allamalla
#2
24. september 2007 klukkan 09:02

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.