Mætt á svæðið
19. september 2007 klukkan 14:00
Síðustu dagar eru búnir að vera yndislegir - var á fundi norður í Skagafirði á mánudagskvöldið og í skoðunarferð í gær sem endaði í siglingu niður Vestari Jökulsá (river rafting). Þetta var alveg frábært, eftir að hafa fengið ærlegt "kikk" í ánni var farið í heitu pottana á Bakkaflöt og þar á eftir var matur. Held ég hafi bara ekki fengið svona ofsalega gott lambalæri, mjög lengi mmmmmm það bráðnaði upp í manni
Síðan var setið að sumbli og spjalli fram eftir nóttu. Eftir morgunmat í morgun var svo brunað heim á leið.
Matarmálin voru algjörlega í rugli - ef þið bara vissuð hvað skagfirskar húsmæður eru myndarlegar- á hverjum stað sem við komum á í skoðunarferðinni í gær, vorum við dregin inn í kaffi og á einum bænum beið okkar matarmikil fiskisúpa jammí jammí ofsalega góð......hehehe, smá útúrdúr!
Jæja nú verður tekið á því, matarmálin verða að komast í sinn fyrri farveg og ég ætla ekki að smakka vín í bráð

Gangi þér vel með matarmálin! :D