Flott hjá þér að fara út að skokka, dugleg stelpa!!!!!
Góða helgi og gangi þér vel með málefnin :)
Nú liggur mér mikiđ á hjarta...
14. september 2007 klukkan 09:04
...og svona er nú það:
Málið er það að ég er í kennsluréttindanámi og þáttur í náminu er að taka þátt í umræðuþráðum á netinu þar sem námsefnið er rætt á málefnanlegum grunni. Það er í góðu lagi og ýmislegt sem kemur þar fram, fólk kemur með sína sýn á málefnin og svo eru málin rædd fram og til baka. Það sem einkennir þetta þó er að mér finnst allir hafa eitthvað svo mikið vit á þessu, það er eins og allir hafi þrjátíu ára reynslu og þ.a.l. svo miklar skoðanir á hlutum. Ég rembist eins og rjúpan við staur að reyna að finna eitthvað gáfulegt til að leggja til málanna en ég er bara gjörsamlega tóm. Hef sett inn þrjú innlegg í umræðuna og finnst þau eitthvað svo ógáfuleg.....hvað er eiginlega að mér? Ég hef áhuga á náminu og finnst þetta skemmtilegt en mér finnst ég ekki geta komið fram með fullmótaðar skoðanir á hlutunum eins og mér sýnist ótrúlega margir gera....ég er kannski bara að misskilja þetta allt?!
Hitti Ástu Einars (hún er deildarstjóri í Andakílsskóla) í gærkveldi og við ræddum skólamál, kennslu og ýmislegt annað og það fannst mér fínt - en að ætla að fara að opna mig fyrir hópi af fólki sem ég þekki ekki neitt, nei það geri ég ekki.............EN svo geri ég það hér á netinu!!!! Hvað er að??
Sé ekki fram á mikið blogg næstu daga, heimilisstúss á morgun, hópavinna í bænum á sunnudag, vinna á mánudag og farið norður seinnipart á mánudag í vinnuferð, kem aftur heim á miðvikudag - já það er í nógu að snúast þessa dagana.
Jæja best að fara út í góða veðrið að kortleggja.
p.s. fór út að skokka í gær
stutt - en ég fór!!!

Rakel
Hæ gaman að lesa um námið þitt. Stattu þig stelpa..þú ert að gera fína hluti.
Góða helgi og bestu kveðjur í bæinn
Góða helgi og bestu kveðjur í bæinn
#3
14. september 2007 klukkan 17:35
Dísa Gests
Blessuð og sæl, hér skrifar kona með reynslu af KHÍ frá síðustu þrem árum. Ég byrjaði að eiga börn 1970 og hef unnið með börn annarra á leikskólum, heimilum fyrir fatlaða og í grunnskóla frá árinu 1972 og er því komin með 35 ára reynslu eða meira. Maður ætti nú að vita ýmislegt eftir þá reynslu en ég upplifði mig eins og jólasvein....ef þeir eru til??? þegar ég byrjaði í KHÍ aftur til að ná mér í kennsluréttindi. Svo ákvað ég að opna mig á vefnum með öðrum nemendum eins og þú gerir HÉR í dag og viti menn, það var allt morandi af fólki þarna úti sem vissi ekkert meira en ég og þú og upplifði sig einangrað og einmana. Ég skrifaði ansi oft til kennara og samnemenda og skrifaði undir Palli einn í heiminum. Já maður er nefnilega alveg eins og það grey sem hélt hann ætti engan að lengur. Þú ert bara hreint út sagt frábær og passaðu bara upp á eigið heilsu þegar er svona mikið að gera. Maður getur alveg koksað á þessum eril öllum saman. Allir gera á mann kröfu og maður vill standa sig 100% alls staðar og vinna 48 tíma á sólarhring. Gangi þér vel og haltu þínu striki, ég er meira en tilbúin að spjalla um þessi mál við þig ef þú þarft einhvern til að tjá þig við eða viðra skoðanir sem eru að veltast um í þér. Góða helgi. Dísa nýbúin með réttindanámið.
#4
14. september 2007 klukkan 18:18
Blessuð aftur. Hér hef ég safnað inn alls kyns efni bæði frá náminu og eins fyrir leikskóla - og grunnskólakennara. Ég var alltaf að tapa efni út sem mér fannst spennandi og var svo hundfúl út í sjálfa mig. Kannski er eitthvað þarna sem þú getur grætt á. Svo er ég með mjög margt annað sem ég veit um endilega sendu mér póst á disagests@gmail.com ef ég get eitthvað stutt þig.
http://skolamal.blogspot.com/
http://skolamal.blogspot.com/
#5
14. september 2007 klukkan 18:25
Ţórunn H.
Sigga mín - mér leið AKKÚRAT svona þegar ég byrjaði í KHÍ á sínum tíma. Ég var sú eina sem ekki hafði unnið neitt á leikskóla og mér fannst ég aldrei hafa neitt til málanna að leggja af því þær allar voru með svo mikla reynslu, enda fékk ég svo sem að heyra það að það þýddi nú ekkert að fara að læra þetta nema hafa prófað að vinna á leikskóla áður.....það var nú ekki beint til að peppa mann upp. Svo komst ég smátt og smátt að því að ég gat þetta alveg og bara býsna vel, enda er maður í skóla til að læra ekki satt - lítið vit í að fara þangað ef maður veit allt um málið fyrirfram. Svo elsku besta hættu að efast um sjálfa þig, þegar þú ferð að lesa og fræðast þá kemur líka kjarkurinn til að hafa skoðanir á málunum. Láttu ekki blekkjast af þeim sem þykjast allt vita - stundum er það líka bara blekkingarleikur. Þú hefur sýnt að þú getur allt sem þú ætlar þér elsku besta vinkona - kveðja Þórunn
#6
15. september 2007 klukkan 19:06
En ţetta međ ađ ţykja mađur sjálfur ekki nógu málefnalegur í khí... ţađ líđur öllum ţannig, ţú veist ađ ţú hefur alveg skođannir á ţessu og ţínar skođannir eiga jafn mikiđ rétt á sér og skođannir hinna. Stundum kemur fyrir ađ umrćđurnar séu og frćđilegar ađ einstaklingurinn/nemandinn gleymist. Haltu ţínu striki ţú ert KLÁR.
Kveđja ađ sunnan
Alla malla