Kaupa, kaupa, kaupa
09. september 2007 klukkan 22:16
Ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. Skutluðumst í bæinn í gærmorgun, nánar tiltekið í IKEA að versla ýmislegt sem er alveg lífsins nauðsynlegt að eiga en við höfum aldrei á okkar búskapartíð átt: samstæð náttborð!!! Ég á eitt gamalt í stíl við kommóðuna mína en aumingja Haukur hefur þurft að notast við stól, svo það var eiginlega kominn tími til!
Verslaði helling af flottum fötum á Green House kynningu hjá Ástu -hrikalega flott allt og ég er ekki frá því nema það hafi komið smá reykur og hitalykt þegar kortinu mínu var rennt í gegn um posann! Já það er ekki það ódýrasta sem maður gerir að létta sig um 20 kíló og þurfa að endurnýja í fataskápnum......en ég er nú samt bara sátt
Fór fyrir hádegið í dag út í vinnu og lærði smá, hlustaði á fyrirlestur og blaðaði í gegnum glærur, spallaði við samnemanda minn (Karólínu) á msn um fyrirliggjandi verkefni. Ég er að spá í að halda mig bara við að læra þar, í ró og næði. Þar er enginn þvottur, eldamennska, óskúruð gólf eða sumir heimilismeðlimir að trufla mig. Er að pæla í að taka a.m.k. tvo daga í viku þannig að þegar vinnudegi er lokið að þá skrepp ég aðeins út, sæki Þórð á leikskólann og svoleiðis en fer svo aftur út í vinnu og tek svona ca tveggja tíma lærdómstörn. Ef ég geri þetta tvisvar í viku og svo sunnudagsfyrriparta fast þá held ég að ég verði á ágætu róli, ég get svo alltaf lesið í bókunum á kvöldin.....hugs, hugs... Jú, ég held þetta sé fínt plan.
Varðandi hreyfinguna þá er ég ekki alveg búin að púsla........ en hádegisgöngurnar eru þó hafnar sem er bara gott, þyrfti endilega að koma mér af stað í morguntrimmi þetta gengur bara ekki lengur. Haukur er reyndar að pæla í að fara þrisvar í viku í hádegisspinning í Borgarnesi, spurning hvort ég skelli mér með honum í þetta í vetur....?
Hef enn ekkert stigið á vigt.....
Nú er 100% ddv vika framundan, gangi ykkur öllum vel
E.S. Varðandi IKEA, ég var að fara í fyrsta skiptið í þá verslun eftir að hún flutti....örugglega ein af fáum ...???!!!!