Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Letidagur

01. september 2007 klukkan 20:41
Letidagur, já svo sannarlega. Hann byrjaði á því að Inga Dóra kíkti í morgun/hádegismat/kaffi. Síðan höfum við lítið gert, jú skruppum og keyptum skírnargjöf, versluðum eitt og annað í leiðinni. Stefán Snær er farinn til höfuðborgarinnar að hitta pabba sinn sem er á landinu núna.
Það er komin smá fiðringur í mig, er að byrja í staðlotu í kennsluréttindanámi við KHÍ eftir helgi, hlakka til en kvíði pínu fyrir líka, ég hef velt þessu fyrir mér: Kemst ég yfir allt sem er á minni könnu nú í vetur? Ég er í 100% vinnu, maðurinn minn líka og auk þess er hann líka í námi, heimilið, heimanámið hjá Stefáni, keyrsla í eitt og annað t.d. íþróttir, já og svo þyrfti ég líka að ná að hreyfa mig líka og ekki má gleyma því langtíma verkefni að halda sér í kjörþyngd.....HVAÐ ER ÉG BÚIN AÐ KOMA MÉR ÚT Í?????????? EN eitt veit ég, það er að ég er algjör snilli í að skipuleggja mig (þó ég segi sjálf frá). Vænn slurkur af skipulagi og jákvæðni og þá tekst þetta allt Glottandi hún Pollíanna er ávalt mér við hlið Brosandi
Halló og takk fyrir síðast :)
Þér tekst þetta Sigga mín... eins og allt annað sem þú tekur þér fyrir hendur sko!!! Þú og þið eruð svo dugleg og Pollyönnu hugsunin hún hjálpar manni, maður verður að vera jákvæður ef þetta á að ganga... keep up! Þú ert dugleg!
Kveðja Silla.
#1
02. september 2007 klukkan 09:07
Dugnaður er þetta í þér kona :) Öss eins og Íslenskri ofurkonu sæmir tekst þér þetta allt saman :)
#2
02. september 2007 klukkan 14:30
Svo er eitt svo fyndið... stundum gengur manni betur að pússla öllu saman þegar það er brjálæðislega mikið að gera! :)
#3
02. september 2007 klukkan 17:50
Ađalheiđur SigurđardóttirPollýanna blívar á allt
#4
02. september 2007 klukkan 23:33
Þú ert ekkert smá dugleg kona :))) gangi þér vel í namínu :)))
kveðja
spekoppur
#5
03. september 2007 klukkan 17:55
 
Dísa Gests
Áfram kona, en passaðu að ofgera þér ekki því maður er alltof gjarn í að gleyma sjálfum sér í öllu argaþrasinu. Flott hjá þér. Baráttukvejur úr Virkjun
#6
03. september 2007 klukkan 21:58
 
Fröken UB
Maður getur allt sem maður ætlar sér, með góðri skipulagningu og vilja. Komst að því í fyrra, var í 100% vinnu 66% mastersnámi og það komu upp veikindi í fjölskyldunni. Þetta var erfitt á tímabili en það hafðist. Ég hef trú á þér:)
#7
05. september 2007 klukkan 16:53

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.