Komin heim...
23. ágúst 2007 klukkan 21:42
...já, hér er ég komin.
Þetta er búið að vera alveg meiriháttar frí. Síðan ég skrifaði síðast þá er ég búin að fara á eitt námskeið í Kennó (reyndar bara örstutt). Strax daginn eftir brunuðum við á Brjánslæk þar sem við hittum Teddu og strákana og gistum þar í bústað eina nótt. Síðan fórum við til Bolungarvíkur þar sem við tókum bát til Grunnavíkur en þar gistum við í tvær nætur, yndislegur staður..... Á þriðjudaginn fórum við aftur til Bolungarvíkur með viðkomu í Aðalvík (Látrum) þar kíktum við aðeins í land. Frá Bolungarvík keyrðum við aftur á Brjánslæk þar sem við gistum í bústaðnum í tvær nætur og við komum svo heim seinnipartinn í dag. Fínt frí að baki. Týndi slatta af berjum og er búin að vigta í poka og frysta slatta, gera sultu og borða slatta með rjóma....mmmm.
Núna er það bara danski, ég þyrfti að smella mér í sund á morgun og um leið á sundlaugarvigtina....verð að horfast í augu við það að sennilega hef ég bætt á mig 1-3 kg....finn það á mér. Enda hef ég ekkert spáð í neitt, vestfirsku hveitikökurnar með smjöri og hangikéti og ber með rjóma hafa haft betur undanfarna daga.......
Núna er ég að upphugsa haustprógramm, skrifa meira um það um helgina