Tíminn líður hratt.......
03. ágúst 2007 klukkan 08:36
Í dag:
Þórður Logi , litli stubburinn okkar er tveggja ára
Það sem tíminn flýgur, finnst eins og það hafi gerst í gær þegar hann fæddist....þegar við fengum hann í hendurnar, hann lá á bringunni á mér og horfði á okkur, það var ótrúleg stund....já tíminn líður hratt. Við eigum von á gestum í kvöldmat í tilefni dagsins en síðan verður haldið upp á afmælið fyrir norðan á sunnudaginn.
Á morgun:
Eigum við Haukur fimm ára brúðkaupsafmæli,
þá reikar hugurinn norður í Laufás til allra þeirra sem eyddu deginum með okkur og áttu stóran þátt í að gera hann ógleymanlegan. Þetta var lítil veisla fyrir nánustu ættingja og vini, ætli það hafi ekki verið um 35 manns. Ég sé fyrir mér alla svo glaða þennan dag, við Þórunn að undirbúa veisluna og tína blóm úti í móa til að skreyta með, Inga og Dúa dansandi inni í eldhúsi á meðan Pétur og Þorsteinn skiptast á að spila á gítarinn og allir syngja.
Meira um daginn í dag:
Ég byrja í þriggja vikna sumarfríi eftir daginn í dag
Hamingja, þú spurðir um kakóið þá set ég alltaf ca 5-10 gr kakó(fer eftir smekk) og leysi það upp í heitu vatni, hita svo mjólk og hræri út í, bæti síðan sætuefni og rjómadropum út í. Það er líka hægt að setja kakó og undanrennuduft, sætuefni og rjómadropa út í heitt vatn en mér finnst hitt betra en ef þú ert með mjólkuróþol gætir þú notað sojamjólk.
Elín færeyska, jú þú giskaðir rétt.....þetta var Óðinn Gíslason hehehehe!
Þórður Logi , litli stubburinn okkar er tveggja ára
Það sem tíminn flýgur, finnst eins og það hafi gerst í gær þegar hann fæddist....þegar við fengum hann í hendurnar, hann lá á bringunni á mér og horfði á okkur, það var ótrúleg stund....já tíminn líður hratt. Við eigum von á gestum í kvöldmat í tilefni dagsins en síðan verður haldið upp á afmælið fyrir norðan á sunnudaginn.
Á morgun:
Eigum við Haukur fimm ára brúðkaupsafmæli,
Meira um daginn í dag:
Ég byrja í þriggja vikna sumarfríi eftir daginn í dag
Hamingja, þú spurðir um kakóið þá set ég alltaf ca 5-10 gr kakó(fer eftir smekk) og leysi það upp í heitu vatni, hita svo mjólk og hræri út í, bæti síðan sætuefni og rjómadropum út í. Það er líka hægt að setja kakó og undanrennuduft, sætuefni og rjómadropa út í heitt vatn en mér finnst hitt betra en ef þú ert með mjólkuróþol gætir þú notað sojamjólk.
Elín færeyska, jú þú giskaðir rétt.....þetta var Óðinn Gíslason hehehehe!
http://heidiblogg.wordpress.com
Heidi
Til hamingju með drenginn og brúðkaupsafmælið ! :)
#1
03. ágúst 2007 klukkan 10:09
Til hamingju með strákinn :-) ég á einmitt eina sem er að verða 2 ára en finnst eins og hún hafi fæðst í gær og finnst rosalega skritið að sjá hvað hún er orðin stór.
Bæti þér inn á linkana hjá mér, vona að það sé í lagi :-)
Bæti þér inn á linkana hjá mér, vona að það sé í lagi :-)
#2
03. ágúst 2007 klukkan 15:41
Magga
Innilega til hamingju með báða dagana! :)
Góða skemmtun fyrir norðan...
Kv. Magga, Eyfi Kiddi og co
Góða skemmtun fyrir norðan...
Kv. Magga, Eyfi Kiddi og co
#3
03. ágúst 2007 klukkan 17:34
Ég hef prufað að búa til kakó úr sojamjólk... það er frekar skrýtið á bragðið. En sojalatté, úff hvað það er gott :)
#4
04. ágúst 2007 klukkan 16:16
Oddný Steina
Til hamingju kæra fjölskylda
kv. úr sólinni í Fljótshlíðinni
kv. úr sólinni í Fljótshlíðinni
#5
05. ágúst 2007 klukkan 17:18