Tröllahafrarnir góđu.....
02. ágúst 2007 klukkan 08:42
Varðandi tröllahafrana þá sýð ég þá ekki, set bara mjólk og saxa ávexti út í, það er líka gott að setja smá sykurlausa sultu út á mmmm og í einhverri uppskrift sem ég hef séð þá væri hægt að skella tröllahöfrunum á pönnu og setja sultuna út á og þá verður þetta pínu stökkt, hef reyndar aldrei prófað það, er alltaf að flýta mér svo mikið á morgnana.
Mér finnst tröllahafrarnir fínir, þeir henta mér en bragðið er ss ekkert mikið.
Mataráætlunin stóðst ekki alveg í gær, það komu gestir og ég útbjó heitan rétt í staðin fyrir kvöldmat, þannig að ég fékk ekki fiskibollurnar mínar.
Fór í Borgarnes seinnipartinn og varð svo pirruð yfir öllu fólkinu eða aðallega bílunum og aftanívögnum svo ég flýtti mér eins og ég gat að versla, sleppti sundinu og fór heim. Mér finnst göturnar og bílastæðin í Borgarnesi engan veginn gera ráð fyrir ferðafólki, þó er gert út á ferðamenn þarna samanber sjoppurnar allar, jamm mín varð pínu pirruð
svo var ég komin með dúndrandi hausverk og ekkert gaman. Af því að ég er nú að kvarta hérna þá er ég alltaf skíthrædd þegar ég er á leið úr Borgarnesi og ætla að taka beygjuna af þjóðvegi 1 inn á Borgarfjarðarbrautina (upp í Reykholt, Hvanneyri, Skorradal) ef það er mikil umferð að sunnan þá þarf maður að stoppa og bíða, sem er ok NEMA þegar maður sér bíla á suðurleið koma á syngjandi siglingu úr Borgarnesi og rétt ná að sveigja framhjá manni. Þarna finnst mér þurfa að gera einhverjar bætur á, þarna hafa orðið slys og spurning um tíma hvenær það muni gerast aftur. Jæja varð að pirrast aðeins, sorry 
Dagurinn í dag hljómar svona:
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, banani.
Hádegi: Brauðsneið með reyktum laxi og grænmeti.
Kvöldmatur: Afmælisveisla hjá Herði Smára, borða grænmetið áður en ég fer.
Allt annað hér og þar yfir daginn en flest verður sparað til kvöldsins.
Hörður Smári til hamingju með þrettán ára afmælið!!!!
Mér finnst tröllahafrarnir fínir, þeir henta mér en bragðið er ss ekkert mikið.
Mataráætlunin stóðst ekki alveg í gær, það komu gestir og ég útbjó heitan rétt í staðin fyrir kvöldmat, þannig að ég fékk ekki fiskibollurnar mínar.
Fór í Borgarnes seinnipartinn og varð svo pirruð yfir öllu fólkinu eða aðallega bílunum og aftanívögnum svo ég flýtti mér eins og ég gat að versla, sleppti sundinu og fór heim. Mér finnst göturnar og bílastæðin í Borgarnesi engan veginn gera ráð fyrir ferðafólki, þó er gert út á ferðamenn þarna samanber sjoppurnar allar, jamm mín varð pínu pirruð
Dagurinn í dag hljómar svona:
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, banani.
Hádegi: Brauðsneið með reyktum laxi og grænmeti.
Kvöldmatur: Afmælisveisla hjá Herði Smára, borða grænmetið áður en ég fer.
Allt annað hér og þar yfir daginn en flest verður sparað til kvöldsins.
Hörður Smári til hamingju með þrettán ára afmælið!!!!
http://www.blog.central.is/harkansex
hamingja
hver er uppskriftin að DDV kakóinu:)??
#1
02. ágúst 2007 klukkan 23:21