Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

íslenskt eða færeyskt???

01. ágúst 2007 klukkan 09:10
Þið hefðuð átt að sjá mig í gær, þegar ég var búin að svæfa stubbinn þá gekk ég um íbúðina eins og brjálaður tarfur.....langaði svo geeeeðveikt í eitthvað gott, fann ekkert suðusúkkulaði sem ég hefði spænt í mig ef ég hefði fundið það en fór þess í stað í heitt bað!!!! Þegar því var lokið fékk ég mér appelsínu og síðan bjó ég til ddv kakó Brosandi
Já, þetta er ekki átakalaust, skal ég segja ykkur!

Ég var að kommenta hjá Ásu Dóru í morgun og minntist eitthvað á hreyfingu þar en ég hef verið að pæla heilmikið í þessu. SKO það fara flest allir sem ég þekki svo hratt í alla hreyfingu, fara 4-5 sinnum í viku í ræktina og finnst það vera algjört lágmark. Ég fór í líkamsrækt 2svar í viku til að byrja með í vetur en jók það í 3svar í viku og fannst það fínt, nb það hentaði mér, síðan fórum við reyndar 3svar í viku í hádegisrölt í vinnunni (ca15-20 mín). Auðvitað verður hver og einn að finna sér þann takt sem hentar en mjög margir sem fara oft í viku (sem ég þekki)  springa því miður oft á limminu og hætta alveg. Er þá ekki betra að sníða sér stakk eftir vexti og fara rólega af stað, finna þann takt sem hentar og halda sér við hann?? Ekki láta einhvern segja manni að maður verði bara að fara 4-5 sinnum í viku af því að annars sjáist enginn árangur. Ég get alveg sagt ykkur það að ég sá árangur þó ég færi bara 2-3 í viku!
Sumarið er tíminn þegar allt vill fara í vitleysu hjá manni en þá mætir maður því með því að ganga eða hjóla það er betra en ekkert......
Jæja þetta er nú meira röflið í mér......og stelpur vitið þið hvað einn kunningi okkar sagði okkur í gær, hann var á Ólafsvöku og hann sagði  í óspurðum fréttum að færeyskar konur væru huggulegri en við íslensku og svo væru þær áberandi grennri!!!!!!!!!!! Hann er að spá í að flytja til Færeyja.........ég veit eiginlega ekki hvað hann var að fara, ég meina við erum fallegastar í heimi, er það ekki?? Koss 

Ég hugsa að ég skelli mér í sund í dag og skelli mér á vigtina í leiðinni.

Svona verður þetta í dag, ansi lítil tilbreyting í þessu
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, 1/2 banani
Hádegismatur: Skyrdrykkur, grænmeti, appelsína
Kvöldmatur: Fiskibollur, grænmeti
Afgangur af ávöxtum, mjólk og fitu hér og þar yfir daginn.
Þetta er náttúrulega ótrúlega ósvífinn maður... og mjög illa upplýstur ;)
#1
01. ágúst 2007 klukkan 09:23
Ég skal ekki segja hvort færeyskar konur eru fallegri en þær íslensku...en ég giska nú samt á að Óðinn nokkur Gíslason sagði þér þetta...er það rétt? Hann hafði allavega orð á því þegar hann var hér heima á Ólafsvöku að hann hafði ekki séð eina einustu ómyndalega konu... misjafnar skoðanir á þessu líklega.
#2
02. ágúst 2007 klukkan 16:03

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.