Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

súkkulađirúsínur og prins póló

31. júlí 2007 klukkan 08:35

Hæ allir, takk fyrir kommentin. Ég ætla ekki að létta mig neitt mikið meira, ég á að vera 67 kg (miðað við hæð) og komst í þá tölu í júní en markmiðið er að halda sig innan við 68. Finnst reyndar allt í lagi að fara niður í 65 en léttari held ég að ég muni líta út eins og Bíafrabarn, ég er það stórbeinótt. Ég er sátt við mig eins og ég er en ég veit að ég verð að passa mig, óregla er minn mesti óvinur því þá dett ég í brauðát sem síðan leiðir af sér löngun í sætindi....jamm svona er það nú bara. Framundan er þriggja vikna frí og þá verð ég að halda rétt á spöðunum, súkkulaðirúsínur og prins póló er eitthvað sem ég á erfitt með að standast en ég skal nú samt gera það.....heppin að vera að fara til Skotlands í viku það er örugglega ekki hægt að fá prins póló og hvað þá súkkulaðirúsínur þar!!!!

Jæja en svona mun dagurinn líta út hjá mér:
Morgunmatur: Tröllahafrar, fjörmjólk, banani.
Hádegismatur: Skyrdrykkur, appelsína, grænmeti.
Kvöldmatur: Nætursaltaður þorskur, soðið nýuppskorið íslenskt grænmeti.
Rest af ávöxtum, fitu og mjólk hér og þar yfir daginn.

Svona fyrir forvitni sakir.... hvar færðu tröllahafra (og hvað er það?)
#1
31. júlí 2007 klukkan 08:57
Tröllahafrar fást t.d. í Bónus, í lífrænu deildinni. Þetta eru hafragrjón frá Sollu á Grænum kosti. Það var einhver sem mælti með þessu við mig og ég keypti pakka til að prófa og líkar vel;) Ég vigta 30 grömm og helli mjólk yfir og britja ávöxt út í ef ég vil.
#2
31. júlí 2007 klukkan 09:01
Ókei, hljómar vel, ætla að prófa þetta... cheeriosið orðið svolítið þreytt :p
#3
31. júlí 2007 klukkan 14:25
.....flott hjá þér Sigga mín - og takk fyrir allan stuðninginn......það er gott að fylgjast með hvað þú ert dugleg....hvetur mann þvílíkt áfram !!!

um að gera að finna hvaða þyngd hentar manni - hvernig manni líður sem bestast :D

Gangi þér glymrandi vel í Skotlandi - en mundu líka að það er stundum hægt að leyfa sér hlutina þegar kjörþyngd er náð - við erum jú með fínt verkfæri til að koma okkur inn á gott ról aftur - og stuðning fram og aftur.....

ég hlakka miiiiikið og meira til að vera á Hvanneyri í vetur......

bestu kveðjur

Ása Dóra
#4
31. júlí 2007 klukkan 23:26
Til hamingju með árangurinn ekkert smá flottur :-)
Ein spurning með trölhafrana er þetta gott ;-) meinna ´síðuru þetta ekkert eins og hafragraut??

Kveðja
Mjóna
#5
01. ágúst 2007 klukkan 15:44

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.