Stopult sumarblogg
18. júlí 2007 klukkan 09:48
Það er kominn 18. júlí og ég hef bara tekið 7 frídaga af sumarfríinu, dagur hér og dagur þar. Ég bíð spennt eftir litla fríinu sem hefst kl 16:00 á morgun en ég þarf síðan nauðsynlega að vinna vikuna fyrir verslunarmannahelgina, eftir það fer ég í vinnuferð til Skotlands (ekki leiðinlegt) og síðan tekur við sumarfrí og ég byrja að vinna aftur í lok ágúst. En þó mun ég eiga einhverja daga eftir sem ég tek eftir hendinni. Ég er orðin mjög sólgin í að komast í frí og þarf bara virkilega á því að halda núna, ég eiginlega hugsa ekkert um neitt annað en frí, frí, frí en góða veðrið sem hefur verið alla daga undanfarið og sundferðir eftir vinnu hafa haldið manni gangandi. Vinnan skemmtileg og allt það en stundum þarf maður að ná að kúpla sig út.
Varðandi mataræðið þá er ég dottin í það að borða 30 gr. af tröllahöfrum, 1 dl. fjörmjólk út á og nokkrar rúsínur í morgunmat, það er æði. Síðan fæ ég mér ávöxt í tíukaffinu og oftast skyr eða eitthvað svoleiðis í hádeginu, ásamt grænmeti. Á kvöldin er það svo kjöt eða fiskur og grænmeti, og af því að veðrið hefur verið svo gott þá er ís leyfilegur hjá mér. Ég fer eftir danska að því leiti að ég borða réttan morgunmat (fyrir utan rúsínurnar) og hádegismat, grænmetið á kvöldin og ávextirnir eru á sínum stað. Þetta er ok á meðan ég þyngist ekki.
Ég rígheld í að halda í markmiðið mitt en það er að fara ekki yfir 68 kíló og það skal takast. Maður fer svo að mæta reglulega i ræktina eftir frí, engin spurning.
Varðandi verðlaunaferðina, hún verður ekki farin í bráð, ég hef bara ekki þörf fyrir hana núna, þetta sumar er svo gott að ég held ég þurfi ekkert að fara neitt annað í sól. Hins vegar verður þetta á bak við eyrað í vetur en ég fann það í vor að þá var maður alveg búin á því og þá hefði maður alveg þegið það að komast í sól.
Svona í lokin þá ætla ég að setja hérna inn nokkrar hugmyndir af grænmetissulli...
en ég var að kommenta hjá Ásu Dóru þar sem hún auglýsi eftir hugmyndum....hér kemur ágrip úr kommentinu:
Varðandi grænmetisrétti þá finnst mér æði að gera rófufranskar.
- eða
skera niður kúrbít eftir endilöngu í ca 4-5 sneiðar, leggja á bökunarpappír, hræra saman olíu, pressuðum hvítlauk, söxuðu eða þurrkuðu rósmarín, pínu pipar og jurtasalt, setja þessa olíublöndu yfir kúrbítssneiðarnar og grilla í ofni....rosagot, jammí, jammí.
- eða
taka blómkálshaus og létt gufusjóða hann, taka síðan olíu og krydd, kannski brauðmilsnu (hádegisbrauðið) og jafnvel hálfan ostskammt og dreifa yfir blómkálshausinn og skella inn í ofn í nokkrar mín, jammí, jammí með þessu væri þá hægt að borða eitt egg eða bara meiri ost.
- eða
rífa niður brauð og saxa niður allskonar grænmeti (300 gr), krydda og blanda vel saman. Þetta er allt sett eða þrýst ofan í lítið eldfast form eða svona álform sem hægt er að kaupa í t.d. Bónus. Eitt egg og hálfur ostskammtur (kotasæla eða bara rifinn ostur) hrært saman og kryddað og hellt yfir, bakað í ofni í smá tíma, borðað með tzaiki (sýrður rjómi, hvítlaukur, rifin gúrka).
- eða
grilla allskonar grænmeti.
Ég veit ekki hvað ég næ að blogga mikið á næstunni en ég læt vita af mér svona af og til.

já lífið er yndislegt:)...og gott að sjá hvað þér líður vel knús til þín í sumrinu...
#2
27. júlí 2007 klukkan 19:21
sé að þú hefur það fínt og bara komin í smá frí, ekki slæmt það ;)
frétti að þú hafir fengið fréttir af mér og bara skelli hlegið hmmmmm þarf e-ð að ræða það við þig hehehehee
hafðu það gott elsku frænka og mundu að það er sumar þá má maður aðeins leyfa sér hlutina - bara taka göngu með ;)
kv. frá bumbulínu ;)