Flott hjá þér, þú stendur þig vel.
Kv. Djúsígella
ný tala
11. júlí 2007 klukkan 22:39
Já, í dag leit í dagsins ljós ný tala, ég er ferlega ánægð með hana ![]()
Ég og drengirnir mínir fórum í sund seinnipartinn í dag og þá skellti ég mér á vigtina, ég hef ekki þyngst síðustu vikur, sjúkket. Það hefur hálft kíló fokið síðan 17. júní. Ég er bara mjög ánægð með það en plííís ekki segja að nú verði ég að hætta og fara að passa mig...ég þoli ekki þær ábendingar (veit að þið meinið vel) því að mér líður mjög vel. Danski er sem fyrr með á virkum dögum en þó með undantekningum. Ég á líka allt sumarfríið eftir en ætli maður bæti ekki á sig í því..... hmhmhm kæmi mér ekki á óvart.
Oohh já hvað er málið með fólk að byrja á þessu "Passaðu þig nú?" Ég léttist aðeins í fyrra en átti eftir alveg 13 kg... og það er nú hellingur. Samt var fólk að segja: "Já ætlarðu nokkuð að léttast meira ha? Bara ekkert fallegt að verða of mjór...." Skil þetta ekki. Af hverju ekki bara "Gott hjá þér! Haltu nú bara áfram!." Og ekki eins og ég hafi verið farin að nálgast það einu sinni að verða mjó.
#3
12. júlí 2007 klukkan 15:07
......til hamingju vinkona - váááá´hvað ég er gleymin - ég tala um að muna eftir að hringja í þig á hverju kvöldi núna.....en gleymi mér alltaf - það verður að bæta úr þessu!!!!
Mér gengur samt mjög vel - ég fór reyndar á Nings í kvöld af því ég var búin að ákveða að fara með systu í bíó og bara hafði mig ekki í að elda.....
ég er líka byrjuð að pakka og gleymi mér við það......en nú set ég það markmið að koma bæði matardagbók og hringingum í lag !!!
gangi þér áfram svona vel - og láttu það ekkert á þig fá þó fólk tali um að þú þurfir að fara að passa þig - þetta er annaðhvort óskhyggja (öðru nafni afbrýðissemi) eða hræðsla við að þú breytist og það missi þig sem vin (undarleg viðbrögð sem fólk fær sem nær árangri í að létta sig - gæti verið gaman að tala um þetta við hinar stelpurnar sem hafa náð af sér kílóum í tugatali).....

#4
13. júlí 2007 klukkan 00:38
Treysti þér hins vegar alveg til að stoppa þig af sjálf áður en hlutirnir fara í óefni, þú ert svo skynsöm...
Knús, Magga