út og suđur
11. júlí 2007 klukkan 08:25
Síðan ég bloggaði síðast þá hef ég, farið suður til Reykjavíkur og eytt peningum í útivistarbúð, farið á útsölur í Kringlunni og eytt peningum þar, aðallega í Polarn o pyret og í Fat Face sem er uppáhaldsbúðin mín þessa stundina. Ég fór í heimsókn til Elínar í Mosfellsdalnum á laugardag, lá í leti úti á palli á sunnudaginn. Við fórum í gönguferð eftir vinnu á mánudag, ca 3 tíma göngu og sund á eftir með' samstarfsfólkinu í skrifstofuhúsinu, þvældist um Skorradal og Lundareykjadal með félagi skógarbænda á Vesturlandi í gær og endaði í mat í Fossatúni í gærkvöld......semsagt brjálað að gera. Fimmvörðuháls verður genginn um helgina, síðan er vinna í fjóra daga og vikufrí eftir rúma viku!!!
Hef svindlað heilan helling núna síðustu tvo dag en verð dugleg fram að gönguferð, danskurinn verður ekki með í för á Fimmvörðuhálsi, hnetur og súkkulaði fá að vera með þar
Fór á vigtina í sðustu viku og þar er allt á góðu róli, ef ég fer í sund í Borgarnes seinnipartinn þá skelli ég mér á vigtina. EN NÚNA ER ÞAÐ VINNAN SEM BÍÐUR. NJÓTIÐ DAGSINS!