Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

tararamm

06. júlí 2007 klukkan 11:33
Það rigndi á Hvanneyri í gærkvöld í næstum því tvo klukkutíma!!!! Ótrúlegt alveg, það er allt að skrælna úr þurrki en akkúrat núna er 17 stiga hiti, sól og blástur = þurrkur. Matarmálin ganga vel en ég hef ekki alveg þann tíma sem ég helst vildi til að ganga en hádegisgöngurnar halda manni við efnið. Hefði þurft að ná að labba eitthvað lengra nú um helgina, síðan ætlar hádegislabbakútahópurinn í lengri gönguferð eftir vinnu á mánudaginn, svo þyrfti ég að ná góðri hreyfingu á miðvikudag, því það styttist í Fimmvörðuhálsgönguna Svalur 
Ætli við skutlumst ekki til Reykjavíkur að kaupa ýmislegt sem vantar fyrir sumarfríið á morgun og kíkjum jafnvel á Landsmót UMFÍ í Kópavogi...Haukur verður reyndar dómari í einni greininni...hugs, hugs, Kópavogur....ferlega skrítin staðsetning verð ég nú að segja, fín aðstaða en maður er bara svo fastur í því að landsmótin séu úti á landi....já, svona er maður nú skrítinn!
Bleeessuð elsku dúllan mín - mundu að ég á heima rétt hjá Kópavogi - bjallaðu endilega ef þið ílengist í borginni - en við systurnar ætlum nebbnilega austur fyrir fjall á morgun - veit ekki hvenær við snúum til baka í borgina.....

.....ágætt að fá aðeins rigningu - gróðurinn varð allavega mjög glaður :o)

hafðu það gott skvís og sjáumstumst......

kv. Ása Dóra
#1
06. júlí 2007 klukkan 23:57
Það er nú ágætt að fá smá rigningu :D var upp í Húsafelli um helgina og þar rigndi á laugardaginn :D
Mér finnst landsmót eigi að vera úti á landi ............ mín skoðun.
#2
11. júlí 2007 klukkan 00:48

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.