Ađalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Sumarfríiđ

03. júlí 2007 klukkan 15:28

Svona verður þetta....
Næsta helgi er laus,
14.-15. júlí er það Fimmvörðuháls.
Helgina 20.-22. júlí verðum við í Skagafirði m.a. í afmæli þar á eftir förum við í nokkra daga í bústað systur minnar og mágs í Eyjafirði.
Helgin 27.-29. júlí er óplönuð allar tillögur vel þegnar!
Verslunarmannahelgin....þá verðum við heima, svo er það vinnuferðin til Skotlands.
Ég var að bóka okkur fjölskylduna í siglingu og gistingu í tvær nætur í Grunnavík, fljótlega eftir Skotlandsferðina í ágúst. Svo verður púslað eitthvað sitthvorumegin við, kannski í Vatnsfirði..... ég sé fyrir mér ber, ber og aftur ber!!!! Við verðum komin heim í tæka tíð fyrir skóla en Grunnskóli Borgarfjarðar byrjar 27. ágúst.
Mér finnst þessi plön alveg hreint ótrúlega fín og ég hlakka virkilega til að ferðast um landið okkar í sumar Hlæjandi
Verðlaunaferðin er ennþá í höfðinu á mér, erum ekkert búin að bóka neitt, ætlum bara að sjá til hvað dettur upp í hendurnar á okkur Glottandi

 
Magga
Líst vel á þetta hjá þér...Ísland er alltaf best.

Annars er ég með tillögu að plani fyrir helgina 27. - 29. júlí...þið komið bara og kíkið á okkur! :) Verðum í bústað, förum reyndar úr honum á laugardeginum en þá gerir maður bara eitthvað sniðugt í staðinn! :) Þið eruð að minnsta kosti velkomin!
#1
03. júlí 2007 klukkan 22:15
Það verður ekki leiðinlegt hjá ykkur í sumar svona á þetta að vera :)))
Njóttu sumarsins dúllan mín og hafðu það gott.
#2
03. júlí 2007 klukkan 23:24
Alltaf sami dugnaðurinn í þér :D
Þér á ekki eftir að leiðast það er eitt sem víst er.
Gángi þér allt í haginn og njóttu þín vinan í útiverunni :D
Takk fyrir kveðjuna.
#3
04. júlí 2007 klukkan 00:56
28. og 29.júlí er ólavsöka....um að gera að skella sér þangað!!!
#4
04. júlí 2007 klukkan 09:16
Hey, til hamingju með útskriftina - algjör snilld!!!!!!!
:):):) jaya
#5
05. júlí 2007 klukkan 21:52

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugiđ

Á ţessari síđu skrifa ég hugsanir mínar og skođanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt ađ nota ţessi skrif mín gegn mér, hvorki í rćđu né riti.