Ég er á lífi....
22. júní 2007 klukkan 12:42
Takk fyrir kommentin stúlkur!
Það hefur verið mikið um að vera hjá mér síðustu daga í vinnu, félagsmálum og auðvitað líka í því að vera húsmóðir og þess vegna ekki haft tíma fyrir bloggið.
Er í stjórn Borgarfjarðardeildar Norræna félagsins og það er vinabæjarmót um helgina og mikið púsluspil í kring um það......ég skil bara stundum ekkert í mér að láta hafa mig út í að stússast í svona löguðu.....hmhmhmhm EN mikið verð ég nú fegin þegar mánudagurinn kemur, þá ætla ég að taka mér tveggja daga frí og ná mér í Skagfirsk loft!
Ég hef haldið mig að mestu innan ramma þess danska en ég ætla að passa mig. Síðan geri ég svolítið sem er ótrúlega gott stundum það er: sama hversu mikið álag er og mikið að gera að þá tek ég mér "alveg sama stund" t.d. í gærkvöldi þá fór ég í fjallgöngu í stað þess að stússast í kring um vinabæjarmótið og í morgun fór ég í ljós!!!! Mæli með þessu
Blogga örugglega lítið sem ekkert fyrr en í næstu viku

innilega til hamingju með árangurinn... er sjálf í danska.. gengur vel en þetta er svo sannarlega ánægjulegar fréttir... til hamingju aftur :)
#2
22. júní 2007 klukkan 22:44
TIL HAMINGJU :D Þú ert engin smá hetja og búin að standa þig alveg stórkostlega!!! Það er alveg ástæða fyrir því að "þú lætur hafa þig út í" vissa hluti, þú ert náttúrulega dugnaðarforkur í eðli þínu og reddar því sem redda þarf ;-) Ég sakna þess að spjalla við þig, eins og við gerðum í vinnunni forðum og smitast af orku þinni og lífsgleði. Haltu áfram striki þínu, þú ert svo lífsglöð og gefandi. Hver veit nema leiðir okkar liggi saman á nýja leið einhvern tíman í framtíðinni?!? En þangað til, þá sendi ég danskar kveðjur og óskir um gott sumar!
Hanna Dóra
Hanna Dóra
#3
26. júní 2007 klukkan 20:38
Þú ert ekkert smá glæsileg kona. Innilega til hamingju mð þennan frábæra árangur. Það er ekkert smá gaman að skoða myndirnar af þér. Takk kærlega fyrir samfylgdina að undanförnu, þú ert mér alveg rosalega mikil hvatning. Líst vel á þessar "mér er alveg sama stundir" held að þetta geti gefið hverri yfirbókaðri húsmóður mikið. Ég hef fulla trú á að þessi lífstíll þinn (regluleg hreyfing og hollt og fjölbreytt mataræði) sé kominn til að vera. Kíki aftur á þig í næstu viku.
Bestu kveðjur
Drekinn stóri