Útskrifuð hjá sjálfri mér...
18. júní 2007 klukkan 20:25
....er það ekki annars í lagi? Fór á vigtina og 300 grömm niður síðan á miðvikudag, þrátt fyrir ís og ýmislegt annað sukk í gær sem ég ætla ekki að tíunda hér.
Ég á eftir 200 grömm í markmiðið en ætla bara samt að útskrifa mig hjá sjálfri mér
ég meina það nú 67,2 er ekki slæm tala....eða er það nokkuð? Ég sætti mig í allavega við hana 
Ferðalagið sem hófst 5. september 2006 er á enda EN núna hefst vinnan fyrir alvöru, það er að halda sig innan við 68 kílóin, en það er mitt markmið.
Ég hef misst að meðaltali 498 grömm á viku.
Þá er húla húla konan komin til enda á ströndinni.....

Ég er að setja inn myndir af mér trúið þið þessu???? Endilega kíkið í albúmin.
Ég ætla síðan að þakka ykkur öllum sem þetta lesið fyrir hvatninguna, án ykkar hefði ég ekki haldið þetta út, svo einfalt er það. TAKK
Ég á eftir 200 grömm í markmiðið en ætla bara samt að útskrifa mig hjá sjálfri mér
Ferðalagið sem hófst 5. september 2006 er á enda EN núna hefst vinnan fyrir alvöru, það er að halda sig innan við 68 kílóin, en það er mitt markmið.
Ég hef misst að meðaltali 498 grömm á viku.
Þá er húla húla konan komin til enda á ströndinni.....

Ég er að setja inn myndir af mér trúið þið þessu???? Endilega kíkið í albúmin.
Ég ætla síðan að þakka ykkur öllum sem þetta lesið fyrir hvatninguna, án ykkar hefði ég ekki haldið þetta út, svo einfalt er það. TAKK
Dísa Gests
Innilega, innilega til hamingju duglega kona. Þú ert algjör hetja og ég ætla að taka þig til fyrirmyndar. Sé að þetta er hægt þó erfitt sé á köflum. Sé þig á röltinu við tækifæri. Eigðu gott og grænmetisfullt sumar með ávexti í eftirrétt. Kveðja frá Virkjun. Dísa
#2
18. júní 2007 klukkan 23:05
Elín
Risaknús til hamingju með frábærann árangur og gangi þér vel í framhaldinu. Nú er orðið ótrúlega stutt í Skotland... það styttist í að þú getir farið að pakka í töskurnar til að geta endurpakkað o.s.fr... ;O)
Faðmlag og kveðja,
Elín
Faðmlag og kveðja,
Elín
#3
19. júní 2007 klukkan 08:28
Víhí, til lukku með þetta. GLÆSILEGT :)
#4
19. júní 2007 klukkan 09:44
Magga
GLÆSILEGT HJÁ ÞÉR KONA! :) Segi það enn og aftur...ég er ótrúlega stolt af þér!! Gangi þér svo rosalega vel í framhaldinu.
Kv. Magga
Kv. Magga
#5
19. júní 2007 klukkan 17:20
Blessuð og sæl. Ég á bara ekki til orð...þetta er bara meiriháttar flott hjá þér, til hamingju!!!
Snilldar myndir og já þær segja margt þessar myndir, held barasta að þær segja allt sem segja þarf.
Ekki annað hægt heldur en að dást að þér...
Kveðja úr Reykjavík, Elin Færeyingur.
Snilldar myndir og já þær segja margt þessar myndir, held barasta að þær segja allt sem segja þarf.
Ekki annað hægt heldur en að dást að þér...
Kveðja úr Reykjavík, Elin Færeyingur.
#6
19. júní 2007 klukkan 21:52
Til hamingju með þennan stóra og frábæra árángur vinan :D
Og þvílíkur munur sem er á þér fyrir og eftir enda nokkuð sem þú getur verið stolt og hreykin af.
Gángi þér vel og vonandi á maður eftir að heyra frá þér annað slagið :D
Og þvílíkur munur sem er á þér fyrir og eftir enda nokkuð sem þú getur verið stolt og hreykin af.
Gángi þér vel og vonandi á maður eftir að heyra frá þér annað slagið :D
#7
20. júní 2007 klukkan 00:47
Til hamingju með þennan glæsilega árangur. Mikið svakalega ertu búin að vera dugleg.
Þetta er hægt og ég ætla sko að taka þig til fyrirmyndar og halda áfram af krafti. Ég þarf að ná af mér svipaðri þyngd og þú ert búin að taka af þér.
TIL LUKKU með þetta, myndirnar eru ótrúlegar, vá, vá, þú ert rosalega flott.
Gangi þér vel í framhaldinu.
Kv. Djúsígella

#8
20. júní 2007 klukkan 10:52
Rosalega rosalega ertu dugleg elsku Sigga mín - og innilega til hamingju.....!!!!!
Ég verð að játa að ég er græn af öfund og vildi að ég væri svona dugleg einsog þú.......þó ég gefi nú aldrei alveg upp vonina - sérstaklega ekki þegar ég sé svona árangur einsog hjá þér.........
.......ég hlakka mikið mikið til að flytja upp á Hvanneyri - get ekki beðið.......heyrumst vonandi fljótlega
kveðja Ása Dóra
p.s. það er víst til lítils að kíkja á bloggið mitt - hefur ekkert hreyfst lengi - en nú fer ég að fá lyst til að skrifa aftur........

#9
20. júní 2007 klukkan 23:45
Hæ ...ti lhamingju...glæsilegt hjá þér....nú er bara að vera eins og spékoppur....elska ddv og halda sig innan marka hans:):)...njóttu sumarsins:)...knús...
#10
22. júní 2007 klukkan 11:42
Þú ert ótrúleg!
En eins og þú segir, þá hefst núna vinnan fyrir alvöru að halda sig í þessari tölu eða alla vega við hana og ég VEIT að þú getur það! Þú ert nú þegar búin að sanna það!
Gangi þér vel... njóttu þess að vera til... í kjörþynd!!!!!!
Kveðja Silla.