....já það er 17. júní í dag......
17. júní 2007 klukkan 20:26
Gleðilega hátíð 
Í dag er dagurinn sem ég hef miðað öll mín markmið varðandi ddv við síðustu mánuði. Þetta byrjaði allt 5. september á síðasta ári, ég fór á fund í Borgarnesi hjá íslensku vigtarráðsjöfunum. Ég ætlaði mér að komast í 67 kílóin, eða að missa 20,6 kíló á þessum tíma..... (ég fór reyndar ekki í sund á Borgarnesi í dag og þ.a.l. ekki á vigtina en ég veit að ég er ansi nálægt markmiðinu) yfir 20 kíló farin og það er meira en ég átti von á, það get ég sko sagt ykkur! Það er nefnilega málið að ég bjóst aldrei við að ná því að verða sextíu og eitthvað kíló.
Fyrsta bloggfærslan var skrifuð 13. september 2006:
Jæja loksins lét ég verða af því!! Byrjuð að blogga
Ástæðan er sú að ég byrjaði í DDV fyrir viku síðan. Eins og einhver sagði (las það einhversstaðar) þá er ég líka sérfræðingur í að fitna, hef alveg síðan á unglingsárum verið yfir kjörþyngd en ég veit að ef ég tek ekki í taumana núna þá á þetta bara eftir að versna. Ákvörðun mín að ganga til liðs við DDV er mjög meðvituð en það sem hefur veitt mér óendanlega trú á þessu eru átaksbloggarar en ég hef bókstaflega legið yfir bloggsíðum þeirra og finnst ég bara þekkja þessar hetjur alveg heilmikið! Ég á nokkrar vinkonur sem eru að breyta um lífsstíl eins og ég og ætla ég að gera allt sem ég get til að styðja þær og "peppa" þær upp.
Ég ætla að setja inn myndir og fleira næstu daga....vonandi!
Á morgun fer ég í leikfimi og í sund og þá fer ég á vigtina og eftir það kem ég með tölfræði