miðvikudagur
13. júní 2007 klukkan 08:33
Ég hef sett mér nýtt markmið, en ég geri mér svo fullkomlega grein fyrir að núna hefst vinnan fyrir alvöru þ.e. að halda mér í réttri þyngd. Núna er ég 67 komma eitthvað kíló.... og ég er ekkert voðalega ströng við mig. Markmiðið er semsagt það að fara ekki upp fyrir 68 kílóa tölu, ef það gerist þá verð ég að vera hörð við sjálfa mig og taka ddv með trukki og dýfu 
Það er nóg að gera hjá mér í vinnunni þessa dagana og svo er það vinabæjarmótið sem verður um Jónsmessuhelgina, það verða færeysk hjón í gistingu hjá okkur og ég er að verða nokkuð spennt fyrir því. Ég er samt að farast úr stressi yfir því að við finnum ekki nógu marga gestgjafa til að hýsa allt fólkið.....jæja en það kemur allta í ljós og eins og maðurinn sagði.....þetta reddast.....
Fer í leikfimi seinnipartinn og síðan á vigtina og í sund klukkan sex.

Glæsilegur árángur og nú er bara um að gera að halda sér á réttum stað á viktinni :D
Gángi þér vel vinan og veit að þú munt geta þetta og ferð létt með.