Mánudagur
11. júní 2007 klukkan 09:18
Þá er Borgfirðingahátíð lokið. Hún stóð frá fimmtudegi til dagsins í gær. Við tókum þátt í ýmsu þessa daga, fórum í göngu á Eldborg, gengum síðan á Hafnarfjall á laugardag, fórum í morgunmat í Skallagrímsgarð í gærmorgun og horfðum á furðufótbolta, gröfuleikni og skoðuðum sýninguna "Heimanmundurinn sem villtist af leið". Þetta var semsagt fín helgi. Ása Dóra kom á laugardaginn og fór seinnipartinn í gær og einnig kom mamma hennar við í kaffi hjá okkur. Veðrið er frábært klukkan 9 í morgun var 1 m/sek, 12 stiga hiti og sól.
Gangan á Hafnarfjall gekk vel, Stefán Snær stóð sig vel og kom með okkur, það var þoka á toppnum þannig að lítið sá maður en það var logn. Ég mæli með göngu á Hafnarfjall, tókum slatta af myndum sem ég ætla að setja hér inn við tækifæri.....ásamt myndum af mér

Anna Lísa
Þetta hljómar rosalega heilbrigt eitthvað, þú ert svo dugleg!!!
#1
11. júní 2007 klukkan 09:26
Þetta hefur verið gaman hjá ykkur:)) mikið rosalega eruð þið dugleg að hreyfa ykkur. Frábært þegar fjölskyldan getur sameinast í að gera eitthvað svona saman.
Gangi þér vel dúllan mín.
Gangi þér vel dúllan mín.
#2
11. júní 2007 klukkan 10:20