Takk fyrir kveðjuna vinan :D
Ég er farin að njóta þess að vera úti að ganga, og hugsa mikið til þess er ég var að byrja og nennti ekki að labba.
mánudagur
04. júní 2007 klukkan 14:54
Ég er á lífi, það er mjög ólíkt mér að setja ekki inn færslu í þrjá daga þannig að nú bæti ég úr því.
Ég ætla að byrja á að þakka ykkur fyrir innlitið á síðuna
Djúsígella jú það er alveg sjálfsagt að þú setjir mig inn í tenglasafnið þitt, ekkert mál og þér er velkomið að nota sama kerfi og ég varðandi skráningar á markmiðum og allt það, ég á engan einkarétt á þessu
Þetta er mjög góð leið til að halda utan um þetta allt saman.
Helgin hefur ekki verið alveg 100% ddv-væn. Fékk mér ís bæði á laugardag og sunnudag og svo fékk ég mér smá köku og pínu nammi líka.......
EN ég held mig við ddv á virkum dögum og ef ég held þyngdinni nokkurn veginn á þessu róli þá er ég sátt. Ég hreyfði mig eiginlega ekkert nema í formi garðvinnu um helgina, ætla síðan á æfingu í dag þannig að þessi dagur ætti að verða nokkuð góður. Morgunmaturinn samanstóð af cherios, fjörmjólk og appelsínu. Fékk mér hrökkbrauð, ost og grænmeti í hádeginu og síðan verður það fiskur og grænmeti í kvöld.
Ég er í fríi fyrripartinn af þessari viku, er með Þórð Loga í aðlögun á leikskólanum, svakastuð.
Úti er rok og rigning
Vonandi verður það ekki svona alla vikuna, við stefnum á UMSB göngu næsta fimmtudagskvöld en það er gengið á fjöll aðra hverja viku á vegum þeirra, núna næst er það Eldborgin, gönguferð sem ætti að henta öllum, ungum sem öldnum. Við förum síðan að öllum líkindum norður í fjörðinn fagra (Skagafjörð) um næstu helgi og þá verður vonandi hægt að fara í einhverjar gönguferðir eða jafnvel fjallgöngu, hver veit
Ég ætla að byrja á að þakka ykkur fyrir innlitið á síðuna
Djúsígella jú það er alveg sjálfsagt að þú setjir mig inn í tenglasafnið þitt, ekkert mál og þér er velkomið að nota sama kerfi og ég varðandi skráningar á markmiðum og allt það, ég á engan einkarétt á þessu
Helgin hefur ekki verið alveg 100% ddv-væn. Fékk mér ís bæði á laugardag og sunnudag og svo fékk ég mér smá köku og pínu nammi líka.......
EN ég held mig við ddv á virkum dögum og ef ég held þyngdinni nokkurn veginn á þessu róli þá er ég sátt. Ég hreyfði mig eiginlega ekkert nema í formi garðvinnu um helgina, ætla síðan á æfingu í dag þannig að þessi dagur ætti að verða nokkuð góður. Morgunmaturinn samanstóð af cherios, fjörmjólk og appelsínu. Fékk mér hrökkbrauð, ost og grænmeti í hádeginu og síðan verður það fiskur og grænmeti í kvöld.
Ég er í fríi fyrripartinn af þessari viku, er með Þórð Loga í aðlögun á leikskólanum, svakastuð.
Úti er rok og rigning
Þú ert rosalega dugleg við að ganga upp á fjöll! :D Fór einu sinnu á Esjuna og var gjörsamlega búin á því á toppnum haha :P
Ætlaði bara að skila kveðju,hef verið að fylgjast með þér en aldrei kvittað :P
kv.Elín

#3
05. júní 2007 klukkan 00:28
Gangi þér vel.
Kv, Átaksgellan