Úff þú ert svo dugleg og með rétta hugarfarið :D
Ég er viss um að þú átt eftir að fara í 67 kílóin en hvort þú náir því innan tímans sem þú gafst þér það kemur bara í ljós. Ég gaf mér töluna 64 kíló en hún er ekkert heilög í huga mér en við verðum að setja okkur einhver markmið.
Ynnilega sammála þér með hreyfinguna enda er hún bara af hinu góða og ég hreyfi orðið bílinn núna mjög lítið, geng það sem ég þarf að fara hehe.... af það sem áður var.
vigtun á miđvikudögum
30. maí 2007 klukkan 13:08
Ég ætla að vera í leikfimi tvisvar í viku í júní og skokka eða ganga 2-3 sinnum í viku. Þar sem leikfimin er á mánudags og miðvikudagsseinnipörtum þá ætla ég að færa vigtanirnar mínar yfir á miðvikudaga í stað þriðjudaga (spara Borgarnesferðirnar...náttúruvæn sko!). Þá koma semsagt nýjar tölur í kvöld, leikfimin er kl 17:00 ....Sigrún ég fer því á vigtina og síðan í pottinn um kl 18:00 á miðvikudögum, eigum við ekki að gera miðvikudaga að "dönskum" dögum?? Síðan er þetta alltaf spurning um hvenær ég hafi tíma til að fara í Garðabæinn, ætli það endi ekki með því að maður detti endanlega út hjá þeim þar? Ég held nú samt að ég geti þetta alveg án þeirra, nei annars þetta var hroki!
....ætla bara rétt að vona að ég hafi ekki þyngst en ég er nú samt ansi smeik við það. Þvílíkt óhófsát um helgina.
Dagurinn í dag:
Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat, grænmetissúpa, brauð og reyktur lax í hádeginu. Hakk og grænmeti í kvöld, ávextir, mjólk og fita hér og þar yfir daginn.
Hvað gerist svo???? Núna er 30. maí 2007 og ég hef því 19 daga til stefnu til að komast í 67 kílóin, það kemur allt í ljós í vigtun í kvöld hvort það sé einhver möguleiki á því að ég nái þessu. Ég rígheld í þann danska og hann er alveg að virka, mér gengur ofsalega vel að fara eftir honum og síðan er hreyfingin punkturinn yfir i-ið. Núna fer ég ekki lengur út í sal að lyfta, ætla að taka mér frí frá því í a.m.k. tvo mánuði en ætla að byrja seinnipartinn í dag í leikfimi sem verður tvisvar í viku út júní. Þess fyrir utan þá ætla ég að fara eftir hlaupaáætluninni en sleppa út hlaupadögum ef ég fer í fjallgöngu. Þannig að ég mun hreyfa mig allt að fimm sinnum í viku núna í júní. Það er kannski fullmikið en ég ætla að prófa þetta þennan eina mánuð en ég ætla að vera í góðri æfingu þegar ég fer í Fimmvörðuhálsgönguna í júlí. Það er nefnilega ekkert gaman að fara í svona gönguferðir ef maður er í lélegu formi. Maður þarf að njóta þess að ganga á fjöll.
Svona í lokin þá ætla ég að segja ykkur það að það er ekkert atriði fyrir mig að komast í 67 kg. ef ég kemst ekki í þá tölu fyrir tilsettan tíma þá só?? Mér líður vel og það er fyrir öllu. Lífið gæti ekki verið betra við mig og ég er þakklát fyrir það sem ég hef og þau kíló sem ég hef ekki!! Við fjölskyldan erum heilsuhraust og okkur líður vel og það er fyrir öllu. Fæ stundum móral yfir að vera að tala um þessa kílóa tölu eða hina....þetta gæti allt verið svo miklu, miklu verra.

Baráttukveðjur - Þórunn.