þriðjudagur til þrautar
29. maí 2007 klukkan 09:47
Nú er feitri helgi lokið!!! Held að miðað við átið sem hefur verið á manni þessa helgi þá slagi þetta upp í jólin! Þrjár veislur á jafn mörgum dögum.....úff, það verður tekið á mataræðiðinu þessa viku, engin spurning og ef ég hef tíma þá skutlast ég á vigtina í Garðabænum.
Næstu dagar verða bara hefðbundnir; borða, vinna, sofa.......
Mataræðið í dag:
Cherios, fjörmjólk, 1/2 banani í morgunmat. Skyrdrykkur, grænmeti og brauð í hádeginu, fiskur og grænmeti í kvöld. Ávextir, fita og afgangur af mjólkurskammtí hér og þar yfir daginn.
Veðrið hér ætlar að vera gott í dag, hitinn var kominn í 10 stig klukkan 9 og vindurinn 2 m/sek.
Ætla að ganga eða skokka í kvöld ![]()
http://blog.central.is/assa-ari
Assa
Já það er loksins komið sumar :D Jibbíííí og ég er sko búin að njóta þess að labba úti í góða veðrinu.
#1
29. maí 2007 klukkan 21:52