Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

róleg helgi

20. maí 2007 klukkan 16:42
Helgin hefur gegnið vel. Fór í bæinn í gær, verslaði mér flotta hlaupaskó í Flexor og er mjög ánægð með það - nú á að fara að stunda hlaup utandyra!!
Í dag hef ég bara verið í rólegheitum hér heima í að undanskilinni sundferð í morgun. Dundaði aðeins í garðinum áðan, það er að koma svolítill sumarfílingur í mann. Ég vona bara að þetta verði gott sumar þannig að maður geti notað pallinn sem mest Brosandi 

Ég hef verið að hugsa heilmikið um þetta átak mitt, þó ég fari í kjörþyngd þá er það bara hálfur sigur, stærsta verkefnið verður að halda þessu en ég ætla að hafa eitt mottó og ætla mér að standa við það..... ÉG FER ALDREI AFTUR UPP FYRIR 70 KG. ALDREI!!!!

Það verður Volare kynning hjá mér annað kvöld (mánudagskvöld, kl 20:30) Það eru allir velkomnir, þið sem eruð líkleg/ar að koma vitið hvar ég á heima! Boðið verður upp á þurrt fótabað Svalur 
LÉTTAR OG EINFALDAR VEITINGAR
 
Magga
Úff, já Sigga mín, það er sko ekkert mál að léttast, mesta málið er að halda sér í kjörþyngd. Hef átt í mikilli baráttu við nammigrísinn í mér að undanförnu, en held að ég hafi borið sigur af hólmi...í þetta skiptið...

Minntu mig á kynninguna á morgun ;) mig langar hrikalega mikið til að kíkja...

Kv. Magga í kjörþyngdarbaráttu
#1
20. maí 2007 klukkan 18:44
Þurt fóta bað það er áhugavert en verst að ég er svo langt í burtu frá þér annars hefði ég haft mikin áhuga á þurru fótabaði.
#2
21. maí 2007 klukkan 23:55

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.