Ég er viss um að þú verðir búin að koma þér í kjörþyngd á 17 júní.
Hér er bara búið að vera gluggaveður, hvasst og kalt. Hef ekki nent út að ganga en dauðlangað ef það hefði ekki verið svona hvasst þá hefði ég farið.
Ég dáist að dugnaðinum í þér.
Gángi þér vel í því sem framundan er :D
sól sól skín (ekki) á mig!
08. maí 2007 klukkan 15:03
Úff það er svo gott veður úti núna, get ekki beðið eftir að klára vinnudaginn og skella mér út í sólina. Stefnan er tekin á sundlaugina, strax klukkan fjögur, það held ég nú! 
Ætli ég fari ekki á vigtina líka, bara af því það er þriðjudagur. Á ekki von á neinum stórsigrum þar eftir ekkisvomikiðhundraðprósentddvhelgi! Hreyfingin er samt alveg á réttu róli enda finnst mér það vera lykillinn að vellíðan minni þessa dagana.
Í síðustu viku var ég að hafa áhyggjur af annríki, það er alveg merkilegt með mig að ef ég hef svo mikið að gera að mér finnst ég vera að kafna þá er eins og maður komi helmingi meiru í verk en annars. Semsagt ég skipulegg mig miklu, miklu betur.
Við vorum að fá boð í eina fermingarveislu og þrefalda útskrift í tveimur skólum um Hvítasunnuna.....(ég á eina systur sem er að útskrifast úr Hólaskóla og bróður og mágkonu sem eru að útskrifast úr fjölbraut) þannig að við förum norður þá helgi en verðum bara í veislum!!! Er samt að vonast til að veðrið verði gott og maður geti komið við hjá Kollu til að prófa pottinn......
Jæja best að vinna í einn klukkutíma í viðbót og taka síðan stefnuna á sundlaugina!
Smá uppfærsla, vigtin stóð í stað, eins og ég bjóst við.

Frábært hjá þér hvað þér gengur vel júhú fíddfiu komin í kjörþyngd 17.júní ekki amarlegt:))) Gangi þér áfram svona vel.