6 vikur til stefnu!!!!
07. maí 2007 klukkan 08:09
Helgin var fín, áttum góðan tíma í bústaðnum, það var borðaður góður matur, drukkið gott vín (hmhmhm), spilað, kjaftað, farið í gönguferðir og síðast en alls ekki síst þá var legið í pottinum. Það er nú alveg geggjað að hafa svona pott, ferlega notalegt að skella sér í hann t.d. áður en maður fer að sofa.
Mataræðið var svona allt í lagi, kannski svona 80% um helgina en só!!!!??? Það er ekki eins og ég sé dottin í eitthvert rugl, fór í mánudagsræktina í morgun og næstu vikur verðar teknar með trompi. Ég hef 6 vikur til stefnu, til að ná af mér 2,3 kílóum og það skal takast. Það þýðir að 383 grömm verða að hverfa á viku.
Þann 17. júní verð ég komin í kjörþyngd!

Sé að við höfum átt svipaða helgi í bústað.
Kveðja Drekinn stóri