Alltaf nóg ađ gera
Ég ætla að byrja á því að þakka ykkur fyrir öll kommentin.
Það er brjálað að gera hjá mér þessa dagana, bæði í vinnu, félagsmálavafstri og einkalífi. Er að undirbúa mig fyrir tvo fyrirlestra sem ég á að halda á morgun á námskeiði í skjólbeltarækt. Í gærkvöldi hittist hluti stjórnar Borgarfjarðardeildar norræna félagsins vegna vinabæjarmóts sem verður í júní, allt á fullu í að undirbúa það. Við fjölskyldan ætlum í bústað um helgina....þrátt fyrir annríki en mikið held ég að þetta verði kósí, potturinn verður örugglega mikið notaður þar. Strax á sunnudagskvöldið fer ég í að undirbúa styrkumsókn fyrir badmintondeildina, á mánudagskvöldið langar mig alveg rosalega mikið á fyrirlestur með Eddu Björgvins....en ég veit ekki hvort ég kemst.....annars verð ég bara heima. Á þriðjudag er spurning hvort ég taki vakt á kosningaskrifstofu...... jamm ég er VG ef þið skylduð ekki hafa verið búnar að fatta það fyrr! Saumó á miðvikudagskvöld, júróvísjón á fimmtudagskvöld!!!! Svo detta inn kosningar og meira júróvísjón. Úps, ekki veit ég hvenær ég hef tíma til að fara suður í vigtun...þyrfti eiginlega að fara sem fyrst ![]()
Annars er dagurinn fínn, cherios, undanrenna, 1/2 banani í morgunmat. Tvö egg, grænmetissúpa í hádeginu. Soðin ýsa og grænmeti í kvöld, ávextir á víð og dreif. Þið takið kannski eftir því en ég svindla aðeins í brauðinu...sleppi því stundum alveg en ef ég fæ mér brauð þá á ég það á hættu að "detta" ærlega í það! Þannig að mér finnst alveg eins gott að sleppa því.
Varðandi fituskammtinn þá fæ ég mér m.a. fiskiolíu (omega) frá Lýsi en ætli hún geti ekki flokkast sem hluti af fituskammti? Hvað haldið þið?
Ég hjólaði í vinnuna í dag....ég er ekkert að skrá það inn í hreyfingardagbókina, gef ykkur bara skýrslu eftir að átakinu "hjólað í vinnuna" er lokið.
Svo var ég að pæla í að ég þyrfti eiginlega að fara að skella inn fleiri myndum, þær koma inn bráðlega, segjum í maí!
bestu kveðjur úr brjáluðu sólskini í Kaupmannahöfninni