1. hjóladagur
02. maí 2007 klukkan 08:28
Jæja, þá er 1. dagur í hjólaátakinu hafinn, mér sýnist 4 af 5 starfsmönnum hafi hjólað í vinnuna. Það er nú ágætis byrjun!
Dagurinn lítur svona út: Cherios, undanrenna, ab léttmjólk, 125 gr ananas (ferskur) í morgunmat. Skyr, grænmeti og brauð í hádeginu. Fiskibollur og grænmeti í kvöld. Ávextir á víð og dreif það sem eftir er dags...
Fór á sundlaugarvigitna í gær, mér sýnist nýr tugur hafa heilsað mér, man ekki hvenær ég var síðast sextíu og eitthvað........EN ég tek þessu öllu með fyrirvara, stóri sannleikurinn kemur í ljós þegar ég hitti vigtarráðgjafana. Ég var að skoða verðlaunin sem ég var búin að heita mér, ég á bara alveg heilan helling inni, hlaupaskó og sundbol. Veitir ekki af að fara að kaupa sundbol minn gamli er allt of stór!

Þetta lítur ferlega vel út svona á mynd.....aðeins 2,7 kg eftir
Ekki spurning þar sem þú ert hlaupandi, hjólandi, syndandi og í fjallgöngu :D Annars öfunda ég af því að eiga bara tæp 3 kíló eftir :( verð að viðurkenna það.
Enda hlakkar mér mikið til að vera í þínum sporum hvenær sem það verður.
Ég ætla mér eingan tíma á það en gef mér 2 ár til þess að klára þetta.