1. maí
Jæja, það hefur verið í nógu að snúast hjá mér. Sýnist vigtin alveg vera ágæt við mig en ég fer á sundlaugarvigtina seinna í dag, eins og venjan er á þriðjudögum.
Það sem af er degi hefur verið fínt, skelltum okkur í fjallgöngu í morgun, gengum á Hestfjall í alveg fráæru veðri. Þórður er sofandi núna en eftir miðdegislúrinn ætlum við í sund.
Nú eru annasamir mánuðir framundan í vinnunni hjá okkur Hauk. Ég ætla bara rétt að vona að veðrið verði gott þar sem vinnan fer að miklu leiti fram utandyra.....eftir grámyglu vetrarins þá er þetta frábær tími sem minnir mann á hvað maður er í annars frábærri vinnu. Ég verð á heilmiklu flakki, bæði í að taka út og líta eftir gróðursetningargengjum og síðan þegar allur gróður er lifnaður þá er það kortlagning væntanlegra skógræktarsvæða með tilheyrandi útiveru og náttúruskoðun....æðislegt alveg ![]()
Við tökum okkur lítið frí fyrri part sumars, kannski bara dag og dag til að lengja helgar en seinast í júlí og í ágúst fer maður að slaka á.