Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Sunnudagsmorgun

29. apríl 2007 klukkan 09:11
Föstudagurinn og laugardagurinn voru annríkir hjá mér. Sá danski var með í för á föstudeginum en á laugardeginum þá fór allt í klessu EN það þýðir ekkert að svekkja sig á því, byrjaði daginn í dag fersk! Nú á að gera allt 100%! Ef ég hef tíma þá ætla ég að skella mér suðurí vigtun í vikunni.
Svona lítur dagurinn út: Speltbrauð, smyrja, ostur, 1/2 banani í morgunmat. Soðin ýsa og grænmeti í hádeginu. Ávextir hér og þar í dag. Grill í kvöld hjá Palla og Ingu Dóru, ekkert sukk, bara kjöt og fullt af grænmeti.

Varðandi "Hjólað í vinnuna" átakið þá erum við samtals 5 starfsmenn á þessum tveim vinnustöðum, ég er nokkuð viss um að við verðum aðallega þrjú sem komum til með að hjóla en það er allt í lagi, það eru þá alltaf 60% þátttaka

Átaksgella, auðvitað máttu bæta mér á listan þinn, ég bæti þér við hjá mér.

Jæja, best að fara að gera okkur klár, erum að fara í sund, ætlum að flatmaga þar fram að hádegi.
Elsku vina þó einn dagur hjá okkur fari út og suður þá getum við ekki annað en verið mannlegar og þá er bara að taka á því daginn eftir :D Enda ertu svo æðislega dugleg að ég er viss um að það hefur lítil áhrif svona EINN dagur... Haltu áfram að gera góða hluti.
#1
29. apríl 2007 klukkan 21:26
jamm samála siðasta ræðumnni ...og er ekkisund svo gott líka:)....gangi þér vel .....
#2
29. apríl 2007 klukkan 22:43
vá flott hjá ykkur þetta hefur ekki verið orðað á mínum vinnustað og ég efast um að fólk viti af þessu þar eða kjósi að gleyma þvú. kv bubble
#3
30. apríl 2007 klukkan 16:54
Frábært hjá þér, hjólreiðar eru ein sú besta líkamsrækt sem um getur, það á eftir að leka af þér smjörið við það.
Vildi að ég gæti tekið þátt (það eru nokkrir í minni vinnu sem gera það) ég bý bara það langt í burtu að ég næði aldrei að ná í vinnuna á réttum tíma eða að sækja börnin á réttum tíma eftir vinnu. Ég elska að fara út að hjóla á sumrin. Gangi þér vel áfram og ekkert að horfa á misstigin spor.

Kveðja drekinn stóri
#4
30. apríl 2007 klukkan 18:11

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.