Aðalvalmynd

Leit

Innskráningar kubbur

Hjólað í vinnuna

27. apríl 2007 klukkan 13:12

Litli vinnustaðurinn minn og teiknistofan sem er hér í næsta herbergi skráðum okkur í "Hjólað í vinnuna" sem er átak "...til að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum...". Mæli með þessu og skora á ykkur að athuga hvort ykkar vinnustaðir hafi áhuga á að taka þátt, heimasíða átaksins er hér.

Frábært framtak við þá sem geta tekið þátt :D
#1
27. apríl 2007 klukkan 14:19
já :) þeir sem kunna að hjóla..... ég var að lesa bloggið þitt hér niður síðunna langt síðan og gaman að sjá hvað þér gengur vel.....góða helgi...knús....
#2
27. apríl 2007 klukkan 16:35
Hey, skvís!

Flott blogg hjá þér og dugnaðurinn greinilega mikill. Var að spá í hvort ég mætti bæta þér við blogghringinn minn en ég vil endilega bæta við þessum duglegu sem eru að blogga oft, það er skemmtilegast að fylgjast með þeim.

Gangi þér vel og góða helgi :)
#3
27. apríl 2007 klukkan 22:20
Altaf sami dugnaðurinn er maður kíkir á þig :D Þú ert æðisleg og svo mikill kraftur í þér kona.
Ég á ekki hjól en er farin að skilja bílinn eftir heima og nota mínar tvær fætur sem eru þarna niðri :D
#4
28. apríl 2007 klukkan 00:16
Ég vinn á þriggja manna vinnustað. Einn starfsmanninn fengi ég aldrei til að hjóla nokkuð held ég, annar býr í húsinu við hliðina og svo er það bara ég.... en ég er samt að hugsa um að taka þátt! Þarf bara að semja við kallinn um að sumargræja hjólið mitt sem hefur rykfallið inní skúr síðan í fyrra... Hvernig ætli sé að hjóla núna um 65 kílóum léttari heldur en í fyrra??
#5
28. apríl 2007 klukkan 09:06

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Athugið

Á þessari síðu skrifa ég hugsanir mínar og skoðanir á ýmsu. Ekki er leyfilegt að nota þessi skrif mín gegn mér, hvorki í ræðu né riti.